Eftirlitsmaður KSÍ á bikarúrslitaleik Mjólkurbikarsins segir stuðningsmenn Víkings Reykjavíkur hafa sungið níðsöngva um Eið Smára Guðjohnsen, þjálfara FH og Eggert Gunnþór Jónsson, leikmann liðsins.
„Það sem ég heyrði varðandi söngvana var „Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender“ Sýnileg ölvun var hjá stuðningsmönnum Víkinga og einn stuðningsmaður hljóp inn á völlinn úr gömlu stúkunni að ég held, en ég sá ekki almennilega hvar hann kom inn.“ segir í atvikaskýrslu eftirlitsmanns KSÍ á leiknum, en hann segir ákveðinn hóp stuðningsmanna Víkings, sem var fremst við grindverk stúkunnar á Laugardalsvelli, hafa sýnt af sér alvarlega hegðun.
„Hann gat síðan valsað um völlinn án afskipta í nokkurn tíma og ekki fyrr en hann var kominn fyrir framan stuðningsmenn Víkinga er hann stoppaði sem gæslan tók að bregðast við. Einnig tók ég eftir bjórdósum í kringum gæslu sem stóð fyrir framan stuðningsmenn Víkinga, án þess að hafa séð þær fljúga þar inn, enda að fylgjast með leiknum sjálfum.“
Þá kemur fram að stuðningsmenn Víkings, hafi allavega í þrígang kveikt á blysum.
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað knattspyrnudelda Víkings R. um 200 þúsund krónur vegna málsins.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðisins.