Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, var langlaunahæsti forstjóri landsins í fyrra af skráðum félögum. Árni Oddur var með rúma 41 milljón króna í mánaðarlaun í fyrra samkvæmt álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem lögð hefur verið fram.
Fréttablaðið og DV greindu frá þessu í morgun.
Tekið er fram að fjármagnstekjur forstjóranna eru ekki inn í þessari tölu heldur berstrípuð mánaðarlaun. Þá geti forstjórarnir verið að fá laun frá öðrum fyrirtækjum að auki. Það gildi til dæmis um Árna Odd sem var með mánaðarlaun upp á rúmar 11,1 milljón króna frá Marel samkvæmt ársreikningi Marel en hann hefur hagsmuni víða í íslensku atvinnulífi.
Margrét B. Tryggvadóttir, forstjóri Nova, er í öðru sæti forstjóralistans með um 9,3 milljónir króna á mánuði en Finnur Oddsson, forstjóri Haga, er þriðji á listanum með rúmar 7 milljónir króna mánuði.
Aðrir forstjórar eru með mánaðarlaun frá 5,4 milljónum króna og niður í 3,4 milljónir.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, er launahæstur íslensku bankastjóranna með rúmar 4,5 milljónir króna, rúmum 300 þúsund krónum meira en Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, fékk greiddar samtals 935 þúsund evrur, jafnvirði um 133 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins í dag, í laun, hlunnindi og kaupaaukagreiðslur á árinu 2021. Það jafngildir mánaðarlaunum upp á tæplega 11,1 milljónir króna. Hér að neðan má sjá lista yfir launahæstu forstjóra landsins í fyrra.
Fréttablaðið mun í samstarfi við DV birta fréttir úr álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem munu birtast í dag og næstu daga.
Hér fyrir neðan má sjá listann yfir forstjóranna:
- Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, 41.057.472
- Margrét B. Tryggvadóttir, forstjóri NOVA, 9.303.181
- Finnur Oddsson, forstjóri Haga, 7.025.788
- Orri Hauksson, forstjóri Símans, 5.392.160
- Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group, 5.297.867
- Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar, 4.631.421
- Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, 4.552.382
- Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, 4.513.057
- Gunnþór Björn Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, 4.441.081
- Eggert Þór Kristófersson, fyrrv. forstjóri Festi, 4.425.873
- Jón Björnsson, forstjóri Origo, 4.378.642
- Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og fyrrv. forstjóri Sýnar, 4.259.825
- Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL fjárfestingafélags, 4.230.731
- Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, 4.213.606
- Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, 4.167.463
- Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka, 3.990.432
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, 3.501.219
- Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Reginn fasteignafélags, 3.485.456
- Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, 3.463.473
- Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International, 3.420.894
- Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eik fasteignafélags, 3.275.101