Stafræna umboðsskrifstofan Kolibri er besti vinnustaður á Íslandi samkvæmt nýjum lista sem Great Place to Work hefur gefið út.
Great Place To Work hefur gefið út nýjan topp 5 lista yfir Bestu vinnustaði Íslands. GPTW er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu og hefur gefið út topplista yfir bestu fyrirtæki landsins undanfarin fjögur ár. Vottuðum fyrirtækjum fjölgaði úr fjórum árið 2022 í 11 árið 2023.
Efstu fimm fyrirtæki landsins á listanum eru Kolibri sem er í fyrsta sæti, Smitten Dating er í öðru sæti, Tryggja í því þriðja, 1939 Games er í fjórða sæti og DHL Express í því fimmta.
,,Starfsemi Great Place To Work á Íslandi hefur vaxið mjög undanfarið ár og virðast fyrirtæki og stofnanir í auknum mæli nýta sér sérfræðiþekkingu GPTW með því að ganga til samstarfs og veita innsýn í sína vinnustaðamenningu. Great Place To Work á sér meira en 30 ára sögu og vottaði yfir 20.000 fyrirtæki á síðasta ári en er svo til nýtt á íslenskum markaði.
Við viljum vita hvað er mikilvægt fyrir stjórnendur og hvað skiptir starfsfólkið máli og nálgumst okkar viðskiptavini með langtímasamband í huga. Við veitum ítarlega innsýn byggða á gögnum úr svörum starfsfólksins sem sýna á hvaða sviðum er verið að gera góða hluti og hvar er svigrúm til að bæta úr. Listinn yfir fimm bestu vinnustaði á Íslandi 2023 sýnir vel hvernig vinnustaðamenning skiptir máli í ólíkum atvinnugreinum,“ segir Ingibjörg Ýr Kalatschan, viðskiptastjóri GPTW á Íslandi.
Hér eru umsagnir um fimm efstu fyrirtækin á Íslandi hjá GPTW>:
- Kolibri –
Stafræna umboðsskrifstofan Kolibri er Besti vinnustaður Íslands 2023. Þau hafa ómiðstýrðan strúktúr sem kallast „holacracy“ sem þýðir „engir yfirmenn“. Gagnsæi launa og jafnt kynjahlutfall gerir vinnustaðinn frábæran að sögn starfsfólksins. - Smitten Dating –
Lífleg skrifstofa þar sem starfsfólkið hittist á hverjum morgni í kaffi og spjall um allt nema vinnuna. Smitten býr að orku, sköpunargleði og jafnvægi vinnu og einkalífs. - Tryggja ehf. –
Tryggja er elsta vátryggingamiðlunin á landinu. Jafnrétti kynjanna er einkennandi fyrir vinnustaðamenninguna og traust mældist einstaklega hátt hjá Tryggja. - 1939 Games –
Framsækinn, sveigjanlegur vinnustaður þar sem ríkir traust og virðing. Fyrirtæki í örum vexti með atvinnutækifæri í Reykjavík og þróunarteymi farsímaleikja í Helsinki. - DHL Express –
Hjálpar til við að halda heiminum gangandi með áreiðanlegum flutningum. Hjá DHL skilja þau mikilvægi viðurkenndrar vottunar til að laða að hæfileikaríkt starfsfólk.