Þetta er vitað um hinn grunaða í máli Madelein­e Mc­Cann

Maðurinn sem grunaður er um að hafa numið Madelein­e Mc­Cann á brott á Al­gar­ve í Portúgal árið 2007 heitir Christian Bru­eckner og er 43 ára gamall. Fjöl­miðlar í Þýska­landi, Portúgal og Bret­landi greina frá þessu.

Á blaða­manna­fundi sak­sóknara í Þýska­landi í morgun stað­festi lög­regla þann grun að Madelein­e Mc­Cann væri látin og gengið væri út frá því að hún hefði verið myrt. Greint var frá nýjum vendingum í málinu í gær þar sem fram kom að grunur beindist að 43 ára gömlum Þjóð­verja.

Sagður hafa játað á bar árið 2017

Madelein­e Mc­Cann hvarf á sumar­leyfis­staðnum Pra­ia da Luz í Al­gar­ve á Portúgal þann 3. maí árið 2007, skömmu fyrir fjögurra ára af­mælis­daginn sinn. Talið er að ein­hver hafi brotist inn í íbúð sem fjöl­skyldan dvaldi í og numið Madelein­e litlu á brott.

Martin Brunt, frétta­maður Sky News, segir að nafn Christians hafi fyrst komið inn á borð lög­reglu árið 2017. „Mér skilst að hann hafi verið á bar með öðrum manni í Þýska­landi um það leyti sem 10 ár voru liðin frá hvarfi Madelein­e. Í sjón­varpinu á um­ræddum bar var fjallað um hvarfið og hann sagði eitt­hvað á þá leið að hann vissi hvað hefði gerst. Hann er einnig sagður hafa sýnt við­komandi mynd­band af því þegar hann nauðgaði konu,“ segir Martin.

Þetta mynd­band varð svo til þess að hann var sak­felldur og dæmdur í fangelsi fyrir um­rædda nauðgun sem átti sér stað á Al­gar­ve árið 2005, tveimur árum fyrir hvarf Madelein­e. Fórnar­lambið í því máli var 72 ára kona, ferða­maður frá Banda­ríkjunum. Dómur var kveðinn upp í málinu í desember síðast­liðnum. „Þetta varð til þess að hann komst undir smá­sjá lög­reglu,“ segir Martin.

Fram­fleytti sér með glæpum

Christian þessi bjó á Al­gar­ve um það leyti sem Madelein­e Mc­Cann hvarf. Hann kom þangað upp­haf­lega sem 18 ára bak­poka­ferða­langur árið 1995 og dvaldi þar nær sleitu­laust til ársins 2007. Í þýskum fjöl­miðlum kemur fram að hann hafi unnið við ýmis­legt, til dæmis sem þjónn, en fram­fleytt sér einnig með glæpum, þar á meðal inn­brotum og fíkni­efna­sölu. Hann bjó að hluta til í hvítum sendi­bíl af gerðinni Volkswa­gen T3 og bjó einnig um tíma mjög ná­lægt staðnum þar sem Madelein­e hvarf. Talið er að hann hafi þó átt heima í sendi­bílnum um það leyti sem Madelein­e hvarf.

Átti 30 mínútna sím­tal skömmu fyrir hvarfið

Í um­fjöllun Telegraph kemur fram að lög­regla geti slegið því föstu að Christian hafi verið í Pra­ia de Luz þann 3. maí árið 2007. Far­síma­gögn sýni að hann hafi átt 30 mínútna sím­tal að kvöldi 3. maí en að­eins þremur tímum síðar var til­kynnt um hvarf Madelein­e. Lög­regla hefur biðlað til þeirra sem voru í sam­skiptum við hann að gefa sig fram.

Þá er bent á það í um­fjöllun Telegraph að Christian þessi hafi einnig átt bif­reið af gerðinni Jaguar sem var á þýskum númerum. Bílinn hafði hann hjá sér í Portúgal og var hann skráður á hann, allt til 4. maí árið 2007 að bíllinn var færður á annað nafn. Þykir það vekja á­kveðnar grun­semdir.

Christian þessi situr sem fyrr segir inni fyrir nauðgun en Christian Hoppe, full­trúi lög­reglunnar í Þýska­landi, segir að hinn grunaði hafi einnig hlotið dóma fyrir kyn­ferðis­brot gegn börnum.

Talin hafa verið myrt

Skömmu eftir hvarf Madelein­e virðist Christian hafa flutt aftur til Þýska­lands þar sem hann hlaut meðal annars dóma fyrir fíkni­efna­sölu og kyn­ferðis­brot. Fundurinn þar sem hann tjáði sig um hvarf Madelein­e og sýndi vini sínum mynd­band af nauðgun fór fram í maí 2017 en í júní sama ár er hann sagður hafa farið aftur til Portúgals. Hann var hins vegar sendur aftur til Þýska­lands skömmu síðar þar sem hann hafði hlotið fimm­tán mánaða fangelsis­dóm fyrir kyn­ferðis­brot. Hann lauk af­plánun þess dóms í ágúst 2018 en mánuði síðar, í septem­ber 2018, var hann hand­tekinn á Ítalíu vegna nauðgunarinnar á banda­ríska ferða­manninum.

Ó­víst er hvað gerist næst í málinu en breska lög­reglan hefur ekki viljað ganga jafn langt og þýska lög­reglan. Rann­sakar hún málið enn sem manns­hvarf en ekki morð. Christian Hoppe segir að rann­sókn þýskra lög­reglu­yfir­valda og upp­lýsingar sem aflað hefur verið bendi til þess að Madelein­e Mc­Cann hafi verið myrt.