Þetta er það sem Íslendingar elska að fá sér á pylsuna – Merkileg könnun MMR

MMR fram­kvæmdi á­huga­verða könnun í sumar þar sem spurt var um hvaða með­læti lands­menn fá sér vanan­lega með pylsunni. Könnunin var fram­kvæmd dagana 23. til 28. júlí síðast­liðinn og var heildar­fjöldi svar­enda 951 ein­stak­lingur, 18 ára og eldri.

Í til­kynningu frá MMR kemur fram að klassíska með­lætið hafi reynst vera ofar­lega í huga lands­manna, en alls kváðust 91% þeirra sem tóku af­stöðu vana­lega fá sér tómat­sósu með pylsu í pylsu­brauði, 85% kváðust fá sér steiktan lauk, 74% pylsusinnep, 66% remúlaði og 60% hráan lauk.

Öllu færri kváðust helst fá sér með­læti sem kalla mætti ó­hefð­bundið með pylsunni en 18% kváðust fá sér sætt sinnep / gult sinnep, 7% kar­töflu­salat og 17% til­greindu eitt­hvað annað og öllu ó­hefð­bundnara með­læti.

Klassíkin var líka efst á blaði þegar litið var til þeirra sam­setninga á pylsum sem finna má á diskum lands­manna. Nærri fjórðungur (23%) kvaðst helst fá sér eina með öllu (pylsu með tómat­sósu, remúlaði, pylsu­sósu, hráum lauk og steiktum lauk, eins og flestum er ef­laust kunnugt) og 8% kváðust fá sér eina með öllu á­samt við­bótar­með­læti. Þá kváðust 9% fá sér eina með öllu en sleppa hráum lauk, 6% eina með öllu nema remúlaði og 6% kváðust sleppa bæði hráum lauk og remúlaði.

Einnig var spurt um hvar svar­endur vilji helst hafa með­lætið í pylsu­brauðinu. Ljóst er að meiri­hluta svar­enda þótti klárt mál að tómat­sósa (77%), steiktur (95%) og hrár laukur (94%) ætti heima undir pylsunni. Minni sam­staða reyndist um um stað­setningu pylsusinnepsins, tveir af hverjum þremur sögðust kjósa að hafa pylsusinnepið ofan á pylsunni (65%) en tæpur fjórðungur kvaðst vilja það undir (23%). Skiptar skoðanir reyndust einnig á hvar rétt væri að stað­setja remúlaðið og kváðust 42% svar­enda vilja hafa það undir pylsunni en önnur 42% ofan á henni.