Þetta er það lang­sam­lega galnasta sem gerst hefur í vikunni að mati Braga

Texta­smiðurinn Bragi Valdimar er með það á hreinu hvað sér þyki vera það galnasta af öllu því sem gerst hefur í vikunni. Það er ekki mál Sigurðar Inga eða salan á Ís­lands­banka.

Það er spurning sem fleygt er fram á vef mbl.is. Hvað áttu að gera við af­gangs rauð­vín?

Í greininni er meðal annars mælt með því að setja tappann í flöskuna og tæma hana á næstu dögum. Einnig er hægt að hella af­gangnum í kla­ka­poka og frysta, þannig áttu alltaf rauð­vín í sósuna þegar þarf á að halda. Svo er hægt að búa til rauð­víns­edik.

Hvað finnst Braga Valdimar um þessi ráð? „Af öllu fimbulf­rú­st­rerandi froðu­fokki vikunnar er þetta samt það lang­sam­lega galnasta. Af­gangs?“