Þetta er tekjuhæsta fjölmiðlafólk landsins

Það kemur sennilega ekki á óvart að Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, sé tekjuhæsti fjölmiðlamaður landsins. Samkvæmt álagningaskrá ríkisskattstjóra sem lögð var fram í gær námu mánaðartekjur Davíðs tæpum 5,5 milljónum króna.

Næstur á listanum er Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi útgefandi og ritstjóri Viljans, en samkvæmt álagningaskrá námu mánaðartekjur hans í fyrra tæpum 4,3 milljónum króna. Björn tilkynnti fyrr á þessu ári að hann væri farinn í persónulegt gjaldþrot vegna mála sem tengdust vefmiðlinum Pressunni.

Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri Árvakurs, er þriðji á listanum en mánaðartekjur hans námu 3,3 milljónum króna.

Hafa ber í huga að listinn er birtur með fyrirvara um villur og í einhverjum tilfellum getur verið um áætlun að ræða.

Hér má sjá tíu tekjuhæstu fjölmiðlamenn landsins samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra:

Davíð Oddsson – ritstjóri Morgunblaðsins – 5.453.837
Björn Ingi Hrafnsson – fjölmiðlamaður – 4.278.000
Haraldur Johannessen – Ritstjóri Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri Árvakurs – 3.300.366
Logi Bergmann Eiðsson – Útvarpsmaður og þáttastjórnandi – 2.770.599
Magnús Ragnarsson – Sjónvarpsstjóri Sjónvarps Símans – 2.758.125
Lára Ómarsdóttir – Samskiptastjóri Aztiq Fund – 2.119.610
Stefán Eiríksson – Útvarpsstjóri – 2.060.258
Bogi Ágústsson – Fréttamaður – 1.984.879
Sverrir Heimisson – Auglýsingastjóri Viðskiptablaðsins – 1.705.733
Sölvi Tryggvason – Fjölmiðlamaður – 1.661.923