Þetta er söngkonan sem syngur zazazaza í Hagkaupsauglýsingunum

Margir hafa eflaust velt fyrir sér hvaða söngkona það er sem syngur viðlagið í einu frægasta lagi landsins, Hagkaupslaginu svokallaða. Þessi ráðgáta hefur verið leyst á samfélagsmiðlinum Twitter.

Pálmi Ragnar úr StopWaitGo samdi lagið ZaZaZa árið 2017 og hefur það fylgt Hagkaupsauglýsingum allar leiðir síðan. Pálmi sagðist í samtali við K100 árið 2017 ekki útiloka að gefa lagið út í fullri lengd.

„Oft þegar maður er að gera lög fyrir auglýsingar þarf að leita að ákveðnum fíling. Ég var að reyna að selja Manhattan þá hugmynd að gera lag sem er ekki með neinum texta því það er rosa erfitt að gera Hagkaupslag sem er eitthvað skemmtilegt,“ þegar Pálmi er spurður um hvernig honum hafi dottið í hug að gera lagið ZaZaZa.

„Það þurfti einhverja cool og creative leið til þess að hafa söngvara inni án þess að hún segði eitthvað,“ bætir Pálmi við og útkoman varð zazaza enda línur eins og lalala og dadada ofnotaðar í popplögum.

Dagbjört Hákonardóttir veltir því upp hvort það sé ekki bara Bríet sem syngur viðkomandi línu. Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður Íslands og skemmtistaðagúrú, staðfestir að það sé hárrétt hjá Dagbjörtu í þræðinum. Það er Bríet sem syngur viðlagið ZaZaZa.