Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi vekur athygli á könnun fyrir Reykjavík síðdegis. Spurningunni er varpað fram á Vísir.is og hljóðar svo: Hvorn af eftirtöldum viltu frekar sjá sem forseta Íslands?
Valið er á milli Guðmundar Franklín og Guðna Th. Jóhannessonar, sitjandi forseta.
Fréttablaðið greindi frá því í dag að Guðni Th. og Guðmundur Franklín eru einu frambjóðendurnir sem hafa skilað meðmælandalistum í öllum kjördæmum, hingað til. Því gæti valið staðið á milli þeirra tveggja.
„Þetta er núna einvígi milli mín og forsetans,“ segir Guðmundur Franklín á Facebook síðu sinni. Þar hvetur hann vini sína og fylgjendur til að taka þátt í könnuninni.
„Fram til sigurs allir mínir menn,“ segir hann að lokum.