„Þetta er náttúru­lega ein ljótasta bygging Ís­lands“

Viktor Stefánsson, stjórnmálafræðingur, telur sig vera með það á hreinu hver er ljótasta bygging Íslands.

Það er byggingin hér að neðan, sem er að finna á Lækjartorgi, sem Viktor vísar til og birtir hugleiðingar sínar um á Twitter - við miklar undirtektir.

Viktor gengur svo langt að segja að finna ætti arkitektinn í fjöru. Annar Twitter verji svarar Viktori og segir: „Eins og tölvuleikur sem var bara 25% tilbúinn og síðan var allt fiffað með einhverjum plástrum sem sá ekki heildarmyndina.“