Ríkissaksóknari Svíþjóðar, Krister Petersson, upplýsti í morgun að Stig Engström, sem stundum var kallaður Skandia-maðurinn, hefði að líkindum drepið Olof Palme, þáverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, að kvöldi 28. febrúar 1986.
Engström þessi fékk viðurnefnið Skandia-maðurinn þar sem hann starfaði í Skandia-byggingunni skammt frá vettvangi morðsins. Hann var einn af þeim fyrstu sem kom á vettvang eftir morðið og lá undir grun í málinu til að byrja með. Lögreglumenn sem rannsökuðu málið á sínum tíma gátu þó ekki með nokkru móti bendlað Engström við það og árið 1987 var rannsókn á meintum þætti hans hætt. Taldi lögregla að hann hefði einungis verið tiltölulega óáreiðanlegt vitni.
Það var á mánudag sem ríkissaksóknari Svíþjóðar boðaði til blaðamannafundar eftir að skotvopnið sem varð Palme að bana fannst. Á blaðamannafundinum í morgun sagði Petersson að niðurstaða rannsóknarinnar væri sú að Engström hefði myrt Palme. Frásögn hans hefð ekki komið heim og saman við frásagnir vitna þegar farið var að skoða málið betur.
Sjónir yfirvalda fóru að beinast að Engström í ríkari mæli árið 2017 þegar rannsóknarnefnd fór yfir öll gögn málsins. Lýsingar hans á því sem átti að hafa gerst umrætt kvöld voru ekki í samræmi við frásagnir annarra vitna á svæðinu. Lýsing vitna á fatnaði morðingjans komu heim og saman við fötin sem Engström klæddist umrætt kvöld. Þá liggur fyrir að Engström hafði aðgang að vopnum og var í nöp við Olof Palme á þeim tíma sem morðið var framið.
Engström þessi var starfsmaður Skandia-tryggingafélagsins en svo vildi til að höfuðstöðvar fyrirtækisins voru skammt frá morðstaðnum. Palme hafði verið í kvikmyndahúsi ásamt eiginkonu sinni umrætt kvöld þegar byssumaður gekk upp að honum og skaut hann.
Engström svipti sig lífi árið 2000 og eðli málsins samkvæmt þýðir það að engin ákæra verður gefin út og rannsókn málsins því sjálfhætt, svo lengi sem engar nýjar upplýsingar koma fram.
Engström þessi var grafískur hönnuður. Hann fæddist á Indlandi árið 1934 og bjó þar með sænskum foreldrum sínum til tólf ára aldurs að hann flutti aftur til Svíþjóðar. Engström starfaði um tíma fyrir Hægriflokkinn þar sem hann vann meðal annars við gerð auglýsinga. Hann sagði þó skilið við flokkinn eftir ósætti. Hann var tvíkvæntur og skildi við seinni konu sína árið 1999. Hann svipti sig lífi árið 2000, 66 ára að aldri.