Þetta er helsta dánarorsökin á Íslandi

Helsta dánarorsökin á Íslandi árið 2021 hefur verið opinberuð. Helsta dánarorsökin þetta árið var krabbamein en á eftir því koma hjartasjúkdómar.

Þessir tveir flokkar ná yfir helming allra dauðsfalla á síðasta ári. Þetta kemur fram í talnabrunni embættis landlæknis sem gefinn var út nýverið og Mogginn greinir frá.

Þar kemur fram að illkynja æxli eru helsta dánarorsökin hjá körlum og konum og var aldursstöðluð dánarorsök á 100 þúsund íbúa 177,8 hjá körlum, en 145,5 hjá konum.

Þrátt fyrir að vera algengasta orsök dauðsfalla hefur talan farið lækkandi á undanförnum árum og frá árinu 1996 hefur talan lækkað um 41% hjá körlum og um 30% hjá konum.