Þetta breytist á laugardag: Svandís boðar ýmsar tilslakanir

Ríkisstjórnin kom saman til fundar í morgun þar sem ákveðið var að ráðast í ákveðnar tilslakanir á aðgerðum innanlands vegna kórónuveirufaraldursins. Þannig munu 500 mega koma saman, í stað 200 áður, að því gefnu að viðstaddir geti framvísað neikvæðu hraðprófi.

Samkvæmt núgildandi samkomutakmörkunum mega sundlaugar og líkamsræktarstöðvar taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda. Eftir breytingarnar verða engar takmarkanir á þessum stöðum. Þá munu 200 mega koma saman á vetiingastöðum og skemmtistöðum í stað 100 áður.

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að breytingarnar taki gildi þann 28. ágúst eða á laugardag og fela þær í sér, eins og að framan greinir, full afköst í sundlaugum og líkamsrækt, iðkendum verði fjölgað í 200 manns á íþróttaæfingum og -keppnum og sviðslistum, eins metra regla falli niður meðal áhorfenda á sitjandi viðburðum, veitingasala heimiluð í hléum og leyfilegur hámarksfjöldi gesta á veitingastöðum fari úr 100 í 200 í rými.

„Þá verður á næstu dögum unnið að útfærslu á tillögum sóttvarnalæknis um að hægt verði að hafa allt að 500 manns í hólfi á sitjandi viðburðum og engin fjarlægðarmörk gegn hraðprófum. Sú útfærsla verður unnin í nánu samráði við þau sem standa fyrir stórum viðburðum,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að reglum um sóttkví hafi verið breytt í vikunni með það að markmiði að þær séu síður íþyngjandi og settar hafa verið reglur um sjálfspróf og reglur um hraðpróf uppfærðar.

„Temprun á útbreiðslu smita virðist ákjósanlegasta og ábyrgasta leiðin til þess að koma íslensku samfélagi smám saman úr hættuástandi vegna Covid-19. Það felur í sér að í stað þess að bæla niður smit með hörðum aðgerðum eða leyfa veirusmitum að ganga óheftum yfir samfélagið er stefnt að því að viðhafa aðgerðir og ráðstafanir sem hægja á útbreiðslu veirunnar. Þessi aðferð er að verulegu leyti í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis um framtíðarfyrirkomulag sóttvarna á Íslandi. Stefnt er að því að aðferðafræði temprunar gildi í takmarkaðan tíma, nema alvarlegar breytingar verði á eðli faraldursins, til dæmis vegna nýrra afbrigða. Temprun smita felur í sér að tekin eru skref í átt að frekari opnun en álag vegna veikinda dreifist á lengra tímabil heldur en ef aðgerðir eru aflagðar í einu vetfangi.“

Nánar á vef Stjórnarráðsins.