Þetta ættu allir að lesa: Sölvi Tryggva nefnir stærsta at­riðið sem bætti líf hans

„Ef ég ætti að deila með ykkur stærsta ein­staka at­riðinu sem hefur bætt líf mitt er það ná­kvæm­lega þetta,“ segir fjöl­miðla­maðurinn, rit­höfundurinn og fyrir­lesarinn Sölvi Tryggva­son.

Sölvi skrifaði mjög svo at­hyglis­verða færslu á Face­book í vikunni þar sem hann sagði frá því hvaða leiðir hann fór til að verða frjáls eins og fuglinn.

„Í mörg ár hélt ég að jafnan væri þannig að mér yrði að líða ein­hvern vegin áður en ég myndi fram­kvæma krefjandi hluti. Ég byrja að skrifa bók þegar inn­blásturinn kemur yfir mig. Ég fer í heims­reisuna þegar tíminn er réttur. Ég geng Jakobs­veginn þegar að­stæðurnar eru full­komnar. Ég skora mig á hólm þegar hlutirnir eru að­eins öðru­vísi en akkúrat núna.“

Alltaf blekking

Sölvi segist ekki vita hvernig málum er háttað hjá öðrum en hjá honum sé þetta alltaf blekking. „Sami hluti heilans og er að reyna að stoppa mig af mun ekki hætta að vera til staðar í fram­tíðinni og þess vegna eru þessar hug­myndir um hinn full­komna tíma­punkt eða full­komna til­finningu til að gera hlutina yfir­leitt ná­kvæm­lega það sem heldur aftur af manni eins og lengi og maður hlýðir því,“ segir hann.

Sölvi segir að það hafi tekið hann fleiri ár af æfingum í að fara út fyrir þæginda­rammann að átta sig á því að lög­málið um fram­kvæmd og til­finningu virkar yfir­leitt öfugt.

„Fram­kvæmdin býr til til­finninguna. Þegar ég á­kveð að fram­kvæma hlutina sama hvernig mér líður fæ ég mjög oft til­finninguna sem ég var að bíða eftir í verð­laun.

Ef ég sest niður og skrifa eina blað­síðu á dag aftur og aftur alveg sama hvað mér finnst textinn lé­legur kemur allt í einu dagurinn þar sem inn­blásturinn læðist aftan að mér og mig fer að langa að skrifa meira og textinn verður betri.“

Fékk stór verðlaun fyrir að stíga inn í framkvæmd

Sölvi segir jafn­framt að þegar hann leggur af stað einn í ferða­lag með fullt af efa­semdum komi allt í einu dagurinn í miðri ferðinni þar sem honum finnst hann vera frjáls eins og fuglinn og allt sé ná­kvæm­lega eins og það á að vera.

„Þegar ég horfi á síðasta ára­tug í mínu lífi sé ég að allt það besta sem ég gerði átti það sam­eigin­legt að vera eitt­hvað sem ég óttaðist. En af því að ég tók í­trekað á­kvörðun um að stíga inn í fram­kvæmd óháð til­finningu, fékk ég stór verð­laun. Ef ég ætti að deila með ykkur stærsta ein­staka at­riðinu sem hefur bætt líf mitt er það ná­kvæm­lega þetta. Ég hef æft mig í að fram­kvæma hluti óháð því hvernig mér líður og er alltaf að verða betri og betri í því. Auð­vitað erum við öll ólík, en þarna liggur lykillinn fyrir mig,“ segir Sölvi Tryggva­son.