Þetta ætlar Sól­veig Anna að gera í til­efni dagsins

„Ég ætla að leyfa mér að upp­lifa þá reiði sem býr í brjósti mér þegar ég skoða þær stað­reyndir sem ég hef að­gang að er varða líf, heilsu og til­veru Eflingar­fé­lags­fólks og fjöl­skyldna þess,“ segir Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Þar segist Sól­veig ætla að nýta daginn í dag, 1. maí - bar­áttu­dag verka­lýðsins, í að hug­leiða stöðu vinnandi fólks á Ís­landi, líkt og á hverjum degi.

„Og ég ætla að blása sjálfri mér bar­áttu­anda í brjóst og lofa sjálfri mér því, enn eina ferðina, að ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að breyta þessu á­standi og til þess að berjast af öllum kröftum fyrir því að loksins renni upp sú stund að verka- og lág­launa­fólk á Ís­landi fái það sem það á sannar­lega inni hjá þessu sam­fé­lagi,“ segir Sól­veig.

Frétt Fréttablaðsins.