Þetta ætlaði Hall­dór Benja­mín að verða þegar hann var ungur maður

Spjót verka­lýðs­hreyfingarinnar hafa að undan­förnu staðið á Hall­dóri Benja­mín Þor­bergs­syni, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka at­vinnu­lífsins, að undan­förnu. Í gær var þó greint frá því að sam­tökin ætluðu ekki að segja upp lífs­kjara­samningnum eftir að stjórn­völd kynntu að­gerða­pakka sinn.

Síðustu daga hefur gengið manna á milli úr­klippa úr DV frá árinu 1995, en þar má finna títt­nefndan Hall­dór Benja­mín í spurningu dagsins. Spurningin var ein­föld: Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Svar Hall­dórs Benja­míns, sem þarna var á 16. aldurs­ári, var nokkuð gott.

„Ég ætla að verða milljóna­mæringur þegar ég verð stór.“

Svarið er skemmti­legt í ljósi þess að hlut­verk Hall­dórs er að gæta hags­muna fyrir­tækja­eig­enda, auð­manna þar á meðal, í deilum við verka­lýðs­hreyfinguna.

Taka skal fram að þetta er ekki í fyrsta sinn sem um­rædd úr­klippa fer í dreifingu, en Kvenna­blaðið vakti at­hygli á henni í febrúar á síðasta ári.

Hall­dór er fæddur árið 1979 og er hag­fræðingur að mennt. Hann hefur hann komið víða við á starfs­ferli sínum, meðal annars starfað sem hag­fræðingur og fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs og hjá Milestone svo eitt­hvað sé nefnt.

Hvort draumur Hall­dórs Benja­míns um að verða milljóna­mæringur hafi ræst – eða muni rætast – skal ó­sagt látið. Sam­kvæmt tekju­blaði Frjálsrar verslunar árið 2019 var Hall­dór þó með rétt rúmar þrjár milljónir í laun á mánuði árið 2018.