Sölvi Tryggvason ræðir við Maríu Birtu Bjarnadóttur leikkonu í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum. Óhætt er að segja að þættir Sölva hafi slegið í gegn enda hafa gestir hans opnað sig um mjög persónulega hluti. Í viðtalinu við Maríu opnar Sölvi sig þó einnig upp á gátt.
Í viðtalinu ræða Sölvi og María meðal annars um sálufélaga, en eins og kunnugt er er María Birta gift listamanninum Ella Egilssyni. María Birta er mikil áhugamanneskja um fríköfun en svo vill til að manneskjan sem kynnti Maríu fyrir fríköfun heitir Apríl og er fyrrverandi kærasta Sölva. Ljóst er að hún á sérstakan stað í hjarta hans.
„Ég og Apríl erum einhverskonar sálufélagar, en við pössuðum ekki saman sem kærustupar,“ sagði Sölvi. María Birta tók undir og sagði: „Ég elska hana, hún er yndisleg.“
Sölvi sagði að hún væri stórkostleg og bætti svo við: „Ég verð næstum því meyr af því að tala um hana (stutt þögn) af því mér þykir svo vænt um hana,“ sagði Sölvi sem átti nokkuð erfitt með sig: „Vá, ég er að fara að gráta í mínum eigin þætti sko.“
María Birta sagðist skilja vel hvernig Sölva liði, en hún sagðist sjálf vera nálægt því að fara að gráta. Sölvi og María Birta héldu svo áfram en þessar tilfinningarússíbani virtist hafa komið Sölva á óvart.
„Vá hvað þetta er skrýtið, ég átti ekki von á þessu,“ segir hann.
Í viðtalinu ræða þau Sölvi og María ýmsa hluti, en eins og kunnugt er hefur María Birta verið búset í Bandaríkjunum undanfarin ár. Þau koma meðal annars inn á COVID-tímabilið sem var sérstakt fyrir Maríu Birtu og eiginmann hennar, Ella Egilsson.
Þau ræða einnig um adrenalínfíknina, löngunina til að vera alltaf að læra eitthvað nýtt, ferilinn í leiklistinni og margt, margt fleira.
Kaflann þar sem Sölvi og María ræða um sálufélagana má sjá hér að neðan þegar rétt rúmlega 1 klukkustund og 10 mínútur eru liðnar af þættinum.