Þessu ætlar Tommi á Búllunni að breyta: Verður í efsta sætinu á lista Flokks fólksins

Tómas A. Tómasson veitingamaður, oft kenndur við Búlluna, verður í fyrsta sætinu á lista Flokks fólksins í Reykjavík norður fyrir komandi Alþingiskosningar.

Tómas greinir frá þessu í pistli sem birtist á vef Eiríks Jónssonar í gær. Tommi greindi frá því í september síðastliðnum að hann væri genginn í raðir Flokks fólksins en nú er komið á hreint að hann verður í oddvitasætinu í Reykjavík norður.

Í pistlinum fer Tommi yfir þau málefni sem hann og flokkurinn stendur fyrir. Bendir hann á að flokkurinn hafi látið sig kjör og hagi eldri borgara varða sem og aðbúnað og hagi öryrkja og þeirra sem minna mega sín.

„Sjálfur er ég orðin eldri borgari og þó svo ég muni ekki alltaf eftir því þá er það bláköld staðreynd. Ég sagði um daginn á aðalfundi Eldri borgara í Reykjavík að ég muni berjast og slást með kjafti og klóm fyrir okkar hag þegar ég fer á þing – bæði hvað varðar frítekjumarkið, persónuafsláttinn, lífeyrisgreiðslur og aðbúnað á öllum þeim heimilum og stofnunum sem við þurfum á að halda þegar við erum farin að eldast og burðir minnka þó svo andlega heilsan sé í góðum fíling. Svo hefi ég þá skoðun að þeir sem geta unnið eigi að fá að vinna eins mikið og þeir treysta sér til án þess að það komi niður á lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun. Þeir sem vilja vinna og geta það eiga að mega það “sama hvað”. Að auki ber ég í brjósti mínu hag einstæðra foreldra,“ segir hann.

Tomma er einnig umhugað um málefni unga fólksins og þá einkum háskólanema sem fá námslán hjá Menntasjóði námsmanna.

„Allir námsmenn eiga að fá að vinna eins mikið og þeir geta án þess að það skerði lánin þeirra nokkurn skapaðan hlut. Það er ekki verið að gefa þeim þessa peninga, þetta eru lán sem þeir endurgreiða þegar þeir koma út í atvinnulífið,“ segir Tómas og bætir við að fyrir þessu séu tvær góðar ástæður.

„Númer eitt. Einstaklingur sem klárar nám og fer út í atvinnulífið er mun betri starfsmaður/kona ef hann/hún hefur unnið með náminu og veit hvað það er að vinna. Ekki bara sitja úti á bókasafni og safna upplýsingum og skrifa ritgerðir sem er svo sem gott og blessað en það er hands on sem skiptir máli,“ segir hann.

„Hin ástæðan er ekki síður mikilvæg en það er þegar námsmaður á námslánum vill afla sér aukatekna, því námslánin eru bara svona rétt til að skrimta af, fær aðgang að svartri atvinnustarfssemi sem er víða í boði – þá í fyrsta lagi er verið að ala hann upp í því að vera óheiðarlegan, sem er skelfilegt veganesti sem getur fests við viðkomandi, og eins þá fær ríkið ekki sitt heldur. Þetta er svona það helsta sem ég hefi að segja í dag. Áfram veginn! Fólkið fyrst, svo allt hitt!“