Eva Bergþóra Guðbergsdóttir var ráðin í stöðu teymisstjóra samskiptateymis Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni en 45 sóttu um starfið.
Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að Eva Bergþóra sé með BA í ensku og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið MA gráðu í alþjóðasamningagerð og MPA gráðu í stjórnsýslufræðum frá Middlebury Institute of International Studies. Eva Bergþóra starfaði eitt sinn sem aðstoðarfréttastjóri á Stöð 2 og Bylgjunni, og áður sem fréttamaður bæði á Stöð 2 og RÚV.
Eva Bergþóra hefur síðastliðinn áratug starfað hjá samskiptasviði Middlebury háskólans í Kaliforníu, nú síðast sem deildarstjóri þar sem hennar starf snýr að upplýsingamiðlun, gerð markaðsefnis fyrir vef og samskiptamiðla, stefnumótun ásamt innri og ytri samskiptum. Eva Bergþóra er jafnframt aðjúnkt við skólann.
Fjölmiðlamenn atkvæðamiklir
Alls sóttu 45 um starfið og er nokkuð óhætt að segja að fjölmiðlafólk hafi verið atkvæðamikið. Meðal þeirra sem sóttu um starfið fengu það ekki var Lilja Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri DV og Davíð Eldur Baldursson, ritstjóri Karfan.is.
Þá sótti Stefán Árni Pálsson, fjölmiðlamaður og umsjónarmaður Lífsins á Vísir.is einnig um stöðuna, auk Hrundar Þórsdóttur, fyrrverandi fréttastjóra á fréttastofu Stöðvar 2. Kristín Þorsteinsdóttir er svo sú eina umsækjenda sem titluð er í tveimur línum, en hún er fyrrverandi útgefandi og aðalritstjóri 365 miðla auk Fréttablaðsins.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttakona á RÚV sótti einnig um starfið en fékk ekki. Þá eru almannatenglar og upplýsingafulltrúar einnig atkvæðamiklir á lista en Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill Kópavogsbæjar er einnig meðal umsækjenda.
Hér að neðan má sjá lista umsækjenda í stafrófsröð:
Anna Caroline Wagner, fjölmiðlafræðingur.
Anna Katrín Valdimarsdóttir,senior verkefnastjóri.
Anna Þóra Ísfold Rebekkudóttir,viðskiptafræðingur.
Árdís Rut Hlífar Einarsdóttir, lögfræðingur.
Ásgrímur Sigurðsson,s tarfræn samskipti / nýmiðlasérfræðingur.
Ásta Gísladóttir, þýðandi.
Berglind Hallgrímsdóttir, sérfræðingur.
Bergþóra Guðbergsdóttir, deildarstjóri.
Borgþór Ásgeirsson, verkefnastjóri.
Carlos Prieto Casquero, sagn- og bókmenntafræðingur.
Daníel Friðriksson, hótelstjóri.
Davíð Eldur Baldursson, ritstjóri.
Davíð Freyr Þórunnarson, menningarstjórnandi
Eygló Hallgrímsdóttir, mannauðsstjóri.
Fanný S Cloé Goupil Thiercelin, umsjónarmaður.
Fjalar Sigurðarson, markaðsstjóri.
Guðbjörg Ómarsdóttir, forstöðumaður.
Guðmundur Bjarni Benediktsson, ferðaráðgjafi.
Gunnar Kristinn Sigurðsson, viðskiptafræðingur.
Gunnar Þorri Þorleifsson, grunnskólakennari.
Haraldur Líndal Haraldsson, samskiptaráðgjafi.
Heiðdís Einarsdóttir, menningarmiðlari.
Helena Ólafsdóttir, íþróttakennari og þáttastjórnandi.
Hildur Kristinsdóttir, verkefnastjóri .
Hrund Þórsdóttir, fréttastjóri.
Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur.
Jón Gunnar Borgþórsson, alþjóðlega vottaður stjórnendaráðgjafi.
Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi.
Kristinn Árnason, markaðsráðgjafi.
Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi útgefandi og aðalritstjóri 365 miðla og Fréttablaðsins
Kristján Ó Davíðsson, íþróttastjóri KLÍ.
Lilja Björk Hauksdóttir, verkefnastjóri.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, blaðamaður.
Lúna Grétudóttir, yogakennari og þjálfari.
Magnús Sigurðsson, lögfræðingur.
Marcin Zembrowski, sérfræðingur í leyfismálum.
Pálmi Jónasson, MBA/fréttamaður.
Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri.
Ragnheiður S Kjartansdóttir, verkefnastjóri.
Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður.
Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir, kynningarstjóri.
Stefán Árni Pálsson, fjölmiðlamaður.
Steingrímur Sigurgeirsson, stjórnsýslufræðingur.
Þór Elíasson Bachmann, verkefnisstjóri.