„Þessi þjálfari er að þessu þegar konan hans á von á barni. Hann hættir ekki fyrr en ég hóta því að segja konunni hans,“ segir í frásögn ungrar konu sem birtist á vefnum Síðasta sagan.
Vefurinn hefur vakið talsverða athygli en á honum safnar Margrét Björg Ástvaldsdóttir félagsfræðingur miður skemmtilegum frásögnum kvenna í íþróttum. Margrét er þjálfari körfuboltaliðsins Aþenu og leikmaður Fylkis í Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu en rannsókn sem hún gerði árið 2016 leiddi í ljós gríðarlegt kynjamisrétti í umgjörð knattspyrnuhreyfingarinnar. Eftir rannsóknina hóf Margrét að safna sögum, en á síðunni má sjá sögur frá íþróttakonum úr körfubolta, fótbolta, handbolta og öðrum íþróttum.
Sagan sem vísað er til hér í byrjun er aðeins ein af mörgum sem birst hafa að undanförnu. Svo virðist vera sem málið sé nokkurra ára gamalt og segir í sögunni að umræddur þjálfari í þjálfarateymi karlalandsliðsins hafi byrjað að spjalla við hana um körfubolta á samfélagsmiðlum.
„En alltaf þegar hann sá að ég var á djamminu þá sendir hann meira óviðeigandi á netheimum. Hann bað mig til dæmis um að koma með sér inn á klósett og á hótel,“ segir í frásögninni og því bætt við að konan hans hafi átt von á barni og áreitið hafi ekki hætt fyrr en stúlkan hótaði að segja konunni hans frá.
Króaðar af úti í horni
Þá segir í annarri sögu frá tveimur vinkonum, 18 ára, sem voru að stíga sín fyrstu skref í A-landsliði kvenna. „Það var grillveisla og liðið fer saman út á lífið ásamt þjálfara. Þjálfarinn króar okkur af út í horni og við förum að spjalla bara, allir hressir. Við spyrjum hann hvers vegna ein stúlka gefi ekki kost á sér í þetta skipti sem var mikilvægur hlekkur liðsins. Þjálfarinn lætur þetta út úr sér:
“Ég skal segja ykkur það ef þið komið í sleik við mig”
“Ég segi ykkur það ef þið komið með mér í threesome”
Í frásögn sinni segir stúlkan að þær vinkonurnar hafi ekkert komist og þjálfarinn verið verulega drukkinn. „Það er ekki fyrr en að erlendur leikmaður úr karladeildinni sér að við erum í vandræðum og hjálpar okkur út úr þessu. Þetta atvik kom okkur í verulega opna skjöldu. Við vorum nýjar, ekki öruggar með okkar sæti í liðinu. Vegna atviksins vorum við með áhyggjur. Að vera með skæting gæti komið niður á tækifæri okkar í landsliðinu.“
Þá segir í sögunni að þjálfarinn hafi að lokum verið rekinn vegna trúnaðarbrests, en ekki hafi verið minnst á að þetta atvik hafi verið ástæðan fyrir uppsögninni. „Eftir uppsögnina fer hann að þjálfa annað kvenna félagslið. Þessi maður starfar í virtu starfi fyrir KKÍ í dag.“