Þessi planta fyllti Gunnar af ranghugmyndum og ofsóknaræði - Í dag segir hann plöntuna gera kraftaverk í lækningum

Smíðakennarinn Gunnar Dan Wiium fjallar um kannabis í pistli sem birtist á Vísi í dag. Þar viðurkennir hann að hafa misnotað kannabis um áraskeið, og í kjölfarið hatað plöntuna, en segist nú sjá að hann hafi ekki áttað sig á stærra samhenginu. Í dag notar hann kannabínóða, en í pistlinum talar hann um „kraftaverk“ sem hann segir að plantan hafi ollið.

„Svona til að byrja með langar mig að segja að í mörg ár misnotaði ég kannabínóðann THC. THC er eini kannabínóði plöntunar sem veldur hugarfarsbeytandi áhrifum eða vímu og þegar ég segi að ég hafi misnotað THC þá meina ég að ég hafi notað óþarflega mikið magn af þessum einstaka kannabínóða og í gegnum neyslu á lyfjahamp sem svo olli þeirra vímu sem ég sóttist í á þeim tíma og stað lífs míns.“

Þetta skrifar Gunnar sem útskýrir að kannabisefnið sem hann notaði hafi innihaldið mikið THC, sem er vímugjafi plöntunnar og á kostnað CBD-hlutans.

„Þegar CBD er tekið úr jöfnunni á kostnað aukins magns THC eykst víman en heilunarmöguleikar plöntunar fara dvínandi því það sem CBD´ið gerir er að styðja við taugakerfið á einkar skilvirkan hátt. THC´ið gerir það líka nema hvað að í svo miklu ónáttúrulegu magni og breyttu hlutfalli við aðra kannabínóða hefur THC´ið þau áhrif á vitundina að hún dregst saman og í mínu tilfelli veldur ofsóknaræði, ranghugmyndum, þunglyndi, geðsveiflum og auknum líkum á misalvarlegu geðrofi.“

Hann segist hafa stöðvað þessa neyslu, en þá hafði hann notað kannabis daglega í tvo áratugi en í kjölfarið hafi hann farið í stríð við plöntuna.

„Það eru nú all nokkur ár síðan ég svo stöðvaði þessa of einangruðu neyslu á kannabínóðanum THC og í dag nota í kannabínóða ekki í þeim tilgangi að komast í vímu sem ég trúi að skekkji vitund mína og skerði samkennd mína gagnvart öðru fólki og einangri mig. Lengi vel í bindindi mínu leit ég á plöntuna sem hættulega mér og öðrum. Ég leit á hana sem vímugjafa eina og sér og að hún væri mér og bindindi mínu stórhættuleg. Ég var í stríði við plöntuna á ómálefnanlegum forsendum og má segja að hugmyndir mínar um plöntuna hafi einkennst af fordómum og fáfræði þótt ég hafi reykt hana nánast daglega í nær tvo áratugi.“

Þá fjallar Gunnar um sögu kannabisplöntunnar en hann segir að kapítalísk hagsmunaöfl hafi svert hana.

„Síðustu hundrað ár eða svo hefur hampurinn, plantan verið svert og talin hættuleg og ólögleg. Þá er ég ekki aðeins að tala um Indica afbrigði plöntunar heldur líka ræktun og öll notkun á Iðnaðarhampi sem fyrir áróðursherferð há kapitalískra hagsmunaafla var gríðarlega útbreidd og áberandi sem hráefni í allskonar iðnaði. Má nefna í því samhengi í iðnaði sem snéri að allskonar textíl framleiðslu og pappír svo eitthvað sé nefnt. Þegar stórir hagsmunaaðilar innan pappírsiðnaðarins, stáliðnaðar, plast og pólyester komu saman í einskonar samkurli með íhaldsömu og valdamiklu samfélagi bindindishreyfinga í Bandaríkjunum upp úr 1900 fór af stað mikil viðhorfsbreyting í garð plöntunnar sem svo nú loksins virðist vera í sterkum og jákvæðum viðsnúning.“

Gunnar opnar sig síðan um neyslu sína á kannsabis í dag og þeim áhrifum sem hann segist finna fyrir.

„Ég vill byrja á að þeim áhrifum sem langtíma notkun á kannabínóðum hefur haft á lund mína og geð. Ég finn sterkt fyrir léttari lund þar sem ég oft á tíðum hneigðist til þunglyndis og geðsveiflna sem keyrð voru áfram af ótta, langvarandi kvíða og gremju. Þeir þættir sem snúa að lund gera það að verkum að ég er betri í stakk búin að sinna hlutverkum mínum sem faðir, eiginmaður, samstarfsfélagi og almennur samfélagsþegn. Hvað varðar minni, athyglisgáfu og innsæi líður mér eins og ég sé í toppformi þrátt fyrri að umhverfi mitt sé fullt og ríkt af oft á tíðum mjög krefjandi verkefnum. Ég finn sterkt fyrir bólguminnkun í líkamanum sem í raun þýðir að langvarandi stoðkerfisverkir í baki svo eitthvað sé nefnt eru algjörlega horfnir. Ástand húðar, hárs og nagla eru eins best er á kosið auk þess að ég finn fyrir betri og skilvirkari meltingu.“

Að lokum færir hann sig yfir í reynslu annara en hann segir kannabis hafa hjálpað við í baráttu við Parkinson og karbbamein.

„Á sama tíma og ég sjálfur finn fyrir þessum breytum í lífi mínu þökk sé kannabínóðum heyri ég sögur daglega nánast af fólki sem leitar til mín eftir ráðum hvað varðar notkun og val á hinum og þessum olíum sem eru í boði. Þessir einstaklingar eru að losa sig við verkjalyf eftir langvarandi neyslu þeirra sem og notkun hina ýmsu lyfja tengt bólgusjúkdómum, greindu þunglyndi, athyglisbrest, kvíða, svefntruflunum o.s.f.r. Ég hef horft upp á mann standa upp úr gríðarlega alvarlegum og sársaukafullum einkennum Parkison með notkun CBD olía sem fást hér útí búð. Ég hef talað við konur sem sögðu að kannabínóðar í raun komu þeim í gegn um breytingaskeið og svo síðast en ekki síst hef ég talað við fólk sem ber það góðar sögur af kannabínóðum í tengslum við krabbamein svo að þeim megi nánast líkja við kraftaverk.“