Fyrrum landsliðsmaðurinn Logi Geirsson sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá þjóðinni í HM stofunni hefur reiknað út hvaða lið enda í átta liða úrslitum á HM.
„Svefnlausar nætur í útreikningum. Þau 8 lið sem eru yfir 85% líkur samkvæmt mínum útreikningum eftir alla riðla að lenda í top 8,“ skrifar Logi.
Samkvæmt spá Loga kemst Ísland áfram og fær Egyptaland í átta liða úrslitum. „Við getum þetta,“ bætir Logi við.
Spá Loga má sjá hér að neðan.
Svefnlausar nætur í útreikningum🎯
— Logi Geirsson (@logigeirsson) January 17, 2023
Þau 8 lið sem eru yfir 85% líkur samkvæmt mínum útreikningum eftir alla riðla að lenda í top 8.
#1. Spánn
#2. Frakkland
#3. Svíþjóð
#4. Ísland
#5. Þýskaland
#6. Noregur
#7. Egyptaland ( okkar mótherji)
#8. Danmörk
Við getum þetta 💥🎯#hmruv23