Þrjár grundvallarbreytingar verða gerðar á samkomutakmörkunum frá og með 18. nóvember næstkomandi. Áfram verður 10 manna samkomubann en starfsemi einyrkja verður heimiluð á ný. Þetta á til dæmis við um hárgreiðslustofur, snyrtistofur og nuddara sem fá leyfi til að opna aftur.
Þetta kemur fram í frétt Vísis.
Loks verður íþróttastarf barna heimilað á ný en það hefur legið niðri undanfarnar vikur. Þá verður í öllum aldurshópum á framhaldsskólastigi 25 manna samkomutakmörk með tveggja metra reglunni. Miðað við fyrri reglugerð gildi þetta einungis um þá sem eru á 1. ári.
Gert er ráð fyrir að breytingarnar gildi til 2. desember næstkomandi.