Þessar breytingar taka gildi strax á miðnætti

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti nýjar samkomutakmarkanir vegna fjölgunar kórónuveirutilfella undanfarna daga. Metfjöldi smita greindist hér á landi í gær, eða rúmlega 300 talsins.

Willum sagði að loknum ríkisstjórnarfundi að farið yrði 20 manna samkomubann í stað 50 áður. Þá munu sundstaðir og líkamsræktarstöðvar mega taka á móti 50% af heildarfjölda leyfðra gesta í stað 75% áður. Þá verður tveggja metra reglan tekin aftur upp í stað eins metra reglunnar áður.

Í gær var greint frá því að Þórólfur Guðnason hefði lagt til að skólarnir myndu byrja síðar í janúar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Willum sagði þó að skólarnir myndu halda sínu striki en ráðherrar skólamála myndu svo ræða málið sín á milli.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að skiptar skoðanir hefðu verið innan ríkisstjórnarinnar um ákvörðunina. Þykir líklegt að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi verið heldur neikvæðari um aðgerðirnar en ráðherrar VG og Framsóknar.

Aðgerðirnar taka gildi strax á miðnætti og gilda þær í þrjár vikur.