Þessar bjórdósir verða á 25 prósent afslætti í Vínbúðinni

Einstök White Ale og Arctic Pale ale dósir verða á 25% afslætti í verslunum Vínbúðanna í janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einstök. Tilefnið er nýjar 12 dósa umbúðir.

Afslátturinn miðar við 12 dósa pakka af Einstök White Ale og Arctic Pale ale dósum.

Með hækkandi sól kemur svo ný kjarnategund Einstök á markað. Um verður að ræða karaktermikinn lagerbjór sem kynntur var landanum sem sumarbjór síðastliðið sumar og fékk góðar viðtökur. Á nýju ári er komið að aðdáendum Einstök erlendis að njóta hans líka, en vörur fyrirtækisins fást nú í 26 löndum, þar af í yfir 25 fylkjum Bandaríkjanna þar sem nýir markaðir hafa bæst við á nýliðnu hamfaraári. Einstök er áfram sá bjór sem lang mest er flutt út af frá Íslandi og hefur um langa hríð einnig verið leiðandi í innlendri sölu svokallaðra craft bjóra.