Þess vegna hætti Gísli Marteinn í Sjálfstæðisflokknum: „Eldrauðir í framan öskrandi á mig“

Sjónvarpsmaðurinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Gísli Marteinn Baldursson hefur ljóstrað upp um hvað varð til þess að hann hætti í Sjálfstæðisflokknum. Gísli Marteinn var vonarstjarna flokksins fyrr á öldinni og var hann nálægt því að verða borgarstjóraefni flokksins árið 2006. Hann var fyrst kjörinn í borgarstjórn árið 2002 en hætti árið 2013.

Hann segir í viðtali í hlaðvarpi Verzl­un­ar­skóla Íslands að ákvörðunin hafi verið tekin eftir leiðinlegan fund í Valhöll, höfuðstöðvum flokksins.

„Ég var á ein­hverj­um hræðilega leiðin­leg­um fundi uppi í Val­höll þar sem var verið að skamma mig fyr­ir að vilja gera strætó betri, vilja hjóla­stíga, vilja að fólk myndi ganga, og vilja aðeins grænni Reykja­vík, sem átti ekki upp á pall­borðið hjá ein­hverj­um mjög gam­aldags, en ágæt­um körl­um, sem voru þarna al­veg eld­rauðir í fram­an öskr­andi á mig að ég væri komm­ún­isti að vilja gera grænni borg,“ seg­ir Gísli Marteinn.

Hér má hlusta á hlaðvarpið.