Theo­dóra segir Ár­mann ljúga: „Allt í klessu“ og Sjálf­stæðis­flokkurinn klofinn í herðar niður

Sjálf­stæðis­flokkurinn í Kópa­vogi er ekki stjórn­tækur og er klofinn í herðar niður. Þrír Sjálf­stæðis­menn í bæjar­stjórn hafa gert í­trekaðar til­raunir til að velta bæjar­stjóranum, Ár­manni Kr. Einars­syni úr sessi. Þetta segir Theo­dóra S. Þor­steins­dóttir, bæjar­full­trúi BF Við­reisnar í Kópa­vogi, í sam­tali við Eyjuna.

Ár­mann Kr. Ólafs­son, bæjar­stjóri Kópa­vogs­bæjar, var í við­tali við Mann­líf. Þar neitaði hann að ó­sætti væri innan bæjar­stjórnarinnar og hann væri að hætta sem bæjar­stjóri. Frétta­blaðið fjallaði ný­verið um að á­­greiningur væri í bæjar­­stjórnar­hópi Sjálf­­stæðis­manna sem gæti endað með að bæjar­­stjórinn yfir­­­gefi sviðið. Trúnaðar­brestur og skiptar skoðanir um sam­­starfs­­flokk í bæjar­­stjórn eru meðal or­saka. Mikill titringur væri innan meiri­hlutans sem mætti rekja allt aftur til bæjar­­stjórnar­­kosninga fyrir tveimur árum.

Sjá einnig: Er Ár­mann að hætta?

Að loknum kosningum árið 2018 horfði Ár­mann til þess að mynda bæjar­­stjórn með sam­einuðum lista Bjartrar fram­­tíðar og Við­reisnar.

Það var þá sem Sjálf­­stæðis­­mennirnir Karen Elísa­bet Hall­­dórs­dóttir, Guð­­mundur Geir­dal og Margrét Frið­riks­dóttir settu Ár­manni stólinn fyrir dyrnar. Sam­­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins hefur hann aldrei fyrir­­­gefið flokks­­fé­lögunum þá fram­­göngu.

Ár­mann svarar fyrir þetta í Mann­líf og segir allt í himna­lagi:

„Ég skil hvorki upp né niður í þeim frétta­flutningi. Það er ná­kvæm­lega ekkert til í þessu. Það gengur allt mjög vel í Kópa­vogi og það hefur aldrei hvarflað að mér að hætta. Ég er ekki á leiðinni út.“

Theo­dóra segir Ár­mann fara með rangt mál

„Það er svo magnað þegar fólk stekkur af stað með kústinn til að reyna að láta allt líta vel út, út á við, þegar það er allt í klessu. [...] Að sjálf­sögðu er ó­sætti í bæjar­stjórn. Al­var­legasta ó­sættið er innan Sjálf­stæðis­flokksins sem er klofinn í herðar niður. Á­kveðinn hluti flokksins með hina svo­kölluðu þre­menninga í fylkingar­brjósti hefur gert í­trekaðar til­raunir til að velta bæjar­stjóranum úr sessi. Það er hins vegar ekki mitt hlut­verk að út­skýra það, Ár­mann ætti sjálfur að opin­bera það. Sannast sagna er Sjálf­stæðis­flokkurinn ekki stjórn­tækur því þar er hver höndin upp á móti annarri og kjarninn í meiri­hlutanum sjálfum er langt í frá heill.“

Sjá einnig: Bæjar­stjórinn sagður á út­leið

Theo­dóra segir þetta bitna á bæjar­búum.

„Þetta ó­sætti bitnar ekki bara á sjálf­stæðis­mönnum í Kópa­vogi. Það bitnar á öllum Kópa­vogs­búum því það gengur allt á hálfum hraða. Tja nema skipu­lags­málin á Fann­borgar­reitnum. Meiri­hlutinn keyrir þau í gegn á sama tíma og fólki er ó­heimilt að koma saman. Þau keyra það í gegn með Fram­sóknar­flokkinn í farar­broddi í skipu­lags­málum sem er stór­furðu­legt því sá flokkur var iðinn við bókanir um sama reit á síðasta kjör­tíma­bili. Þær bókanir gengu gegn þessari fram­kvæmd. Þær fjölluðu um mikil­vægi þess að í Fann­borginni ættum við að hafa for­gang um sam­starf við byggingar­sam­vinnu­fé­lög ofl. Greidd voru at­kvæði gegn Borgar­línunni og svona mætti halda á­fram.“

Theo­dóra heldur á­fram: „Nú hefur orðið kú­vending, fyrri skoðanir skipta engu máli og þar virðast engin prinsipp ráða för. Fann­borgar­reiturinn er risa­vaxið skipu­lags­mál þar sem verið er að fara úr 5.000 fm í 28.000 fm. Aldrei í ver­öldinni hefði mér dottið í hug að svo margir fer­metrar væru á dag­skrá þegar við seldum Fann­borgar­húsin. Þar fyrir utan er til­lagan mis­heppnuð í alla staði og munum við í BF Við­reisn aldrei sam­þykkja hana.“

Þá skorar hún á meiri­hlutann að hysja upp um sig buxurnar og byrja að vinna fyrir bæjar­búa.

Frétt Eyjunnar má lesa í heild hér.