Thelma segir lífið vera auð­veldara eftir að hafa misst 50 kíló

„Það eru 50 kíló farin. Ég var orðin 142 kíló þegar ég var sem þyngst,“ segir Thelma Dís Magnús­dóttir í sam­tali við Hring­braut. Rúmt ár er nú liðið síðan Thelma fór í maga­ermi og er ó­hætt að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan þá.

Thelma hafði sett sér það mark­mið eftir að­gerðina að missa 50 kíló og náði hún þeim á­fanga fyrir skemmstu. Thelma ræddi við Hring­braut um ferlið, hvað varð til þess að hún á­kvað að fara í maga­ermi og hvaða breytingar hafa orðið á lífi hennar eftir að­gerðina. Hún gekkst undir að­gerðina þann 10. septem­ber 2019 hjá Aðal­steini Arnar­syni á Klíníkinni í Ár­múla.

Hafði prófað ýmislegt

„Ég hafði í rauninni prófað alla kúra og þegar maður hafði prófað þetta allt með engum árangri þá fór maður að skoða aðra mögu­leika,“ segir Thelma sem nefnir að ketó hafi í raun verið eini lífs­stíllinn sem hún átti eftir að prófa.

Sumarið 2019 stóð Thelma á á­kveðnum tíma­mótum í lífi sínu en þá var hún ný­búin að klára há­skóla­nám í Dan­mörku og var að­eins með sumar­starf hér á landi. „Ég vissi svo í rauninni ekkert hvað ég var að fara gera. Ég var ekki með fasta vinnu og á­kvað að panta mér tíma hjá lækni og kýla á þetta í kjöl­farið. Af hverju ekki þegar maður hefur prófað allt annað?“

Thelma, sem er 27 ára, segist í raun hafa verið í yfir­þyngd alla sína ævi. Á ung­lings­árunum fór hún þó að fitna meira þó hún hafi alla tíð verið nokkuð virk og sterk að eigin sögn. Nú þegar 50 kíló eru farin hefur ýmis­legt breyst í lífi Thelmu, til dæmis við­horfið til matar. Ýmislegt sé nú auðveldara en það var áður.

„Líkam­leg heilsa er allt önnur og þó maður hafi tekið kúra og kúra þá er maður meira að spá í að fá ekki sam­visku­bit þegar maður fær sér eitt­hvað. Maður var að brjóta sig niður ef maður fékk sér eitt­hvað en í dag er það ekki þannig. Ég er enn að leyfa mér hluti, til dæmis að fá mér pizzu, en maður er líka farin að hugsa meira um næringuna. Að því leyti hefur hugar­farið breyst.“

Alltaf verið líkamlega sterk

Út­haldið er meira en áður en eins og Thelma lýsir sjálf hefur hún verið virk undan­farin ár og stundað reglu­bundna hreyfingu. „Eins og ég hef oft sagt að þá var ég hraust feita­bolla,“ segir hún og hlær en bætir við að þegar hún bjó í Dan­mörku hafi hún stundað Cross­fit og alla tíð verið líkam­lega sterk.

„Ég hef verið í einka­þjálfun með systur minni sem er mjög venju­leg kona og ég var alltaf að lyfta þyngra en hún.“

Thelma segir að mark­miðin séu og hafi verið skýr. „Ég var alltaf með þetta mark­mið að ná 50 kílóum af mér og nú þegar ég hef náð því langar mig að byggja mig upp og vera hraustari. Núna er ég ekkert endi­lega að fókusa á kílóin heldur meira að tóna mig og svo­leiðis.“

Upplifði fordóma frá læknum

Að­spurð hvort hún hafi orðið vör við ein­hverjar við­horfs­breytingar frá fólki viður­kennir hún að hafa upp­lifað á­kveðna fitu­for­dóma á árum áður, einkum frá læknum. „Ég lenti til dæmis í á­rekstri og var að drepast í bakinu og mér var bara sagt að fara út í hálf­tíma göngu­túr. Það var á því tíma­bili sem ég bjó í Dan­mörku og labbaði og hjólaði allt,“ segir hún en svo virðist vera sem læknar hafi gert ráð fyrir að hún stundaði enga hreyfingu þar sem hún þótti of þung. Hún segir að þetta hafi að vissu leyti breyst.

Thelma segir að þeir sem hyggjast fara sömu leið og hún þurfi að standa með þessari á­kvörðun og ekki fara í felur. Sjálf er hún til dæmis aldrei feimin við að segja neinum að hún hafi farið í þessa að­gerð. Það telur hún að hafi hjálpað sér. Hún ítrekar þó að hér sé hún að lýsa sinni reynslu og geti því aðeins talað fyrir eigin hönd.

„Ef ein­hver hrósar mér og spyr hvað ég sé að gera þá byrja ég á því að segja að ég hafi farið í að­gerðina. Ég hef aldrei verið feimin við að segja fólki að ég hafi tekið þessa á­kvörðun.“ Thelma tekur að lokum fram að góður stuðningur sé mikil­vægur, en sjálf kveðst hún hafa fengið ó­metan­legan stuðning frá fjöl­skyldu og vinum í ferlinu sem hún er þakk­lát fyrir.

Frábær árangur. Thelma hefur misst 50 kíló á því rúma ári sem liðið er frá aðgerðinni.