Thelma Dórey Pálmadóttir, 14 ára Siglfirðingur, var hætt komin við gosstöðvarnar í Geldingadölum á dögunum þegar hún fékk gaseitrun. Thelma var í viðtali í kvöldfréttum RÚV þar sem hún sagði frá reynslu sinni.
Það var á páskadag að hún skellti sér, ásamt fjölskyldu sinni, að gosstöðvunum en ekki löngu eftir að hún kom að eldgosinu fann hún fyrir mikilli ógleði. Hún lá á jörðinni, reyndi að kasta upp en kom engu frá sér. Þegar mesta gleðitilfinningin var farin fékk hún mikið kuldakast og krampa í hendur og fætur. Björgunarsveitarmenn komu á vettvang og skutluðu Thelmu til móts við sjúkrabíl.
„Þau tóku prufu á koltvísýringnum mínum og hann var mjög lár. Hann var í fimm til sex en á að vera í þrjátíu og fimm að meðaltali, þau héldu að tækin væru biluð, þau hafa aldrei séð svona lágan,“ segir Thelma sem var send til Keflavíkur með forgangi og svo á Barnaspítalann þar sem hún fékk súrefni og vökva í æð. Fjórum dögum eftir atvikið kveðst hún enn finna fyrir ógleði en læknar töldu víst að hún hefði fengið eitrun vegna gastegunda sem koma frá gosinu.
Í frétt RÚV kom fram að tíu einstaklingar hafi haft samband við Eitrunarmiðstöð Landspítalans vegna einkenna gaseitrunar eftir heimsókn að gosstöðvunum. Þá hafi tveir læknar leitað ráða.