Skiptar skoðanir eru meðal fólks um innrás Rússa í Úkraínu, flestir eru á þeirri skoðun að innrásin sé óréttlætanleg og að Vladimír Pútín Rússlandsforseti sé að gera stór mistök. Aðrir hafa komið Rússum til varnar og leggja trú á orð þeirra um að vera að vernda eigin borgara. Einar Kárason rithöfundur sendir þeim tóninn á Facebook:
„Maður sér menn hér reyna að réttlæta og útskýra, með fáránlegri þvælu, morðárás Pútín - Rússlands á saklausa borgara í nágrannalandi. Þeir sem það gera eru álíka marktækir og viðræðuhæfir eins og ef einhver færi að réttlæta gjörðir fjöldamorðingjans frá Útey.“
Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og ráðherra, tekur undir með honum:
„Gerendameðvirkni, siðferðileg afstæðishyggja og “sami rassinn undir þeim öllum” hugmyndafræði hefur verið að plaga íslenska vinstri hreyfingu um áratugi. Vonandi verður þetta grímulausa ofbeldi til að breyta því.“
Egill Helgason fjölmiðlamaður einnig: „Furðulegur andskoti.“
Það gerir líka leikarinn Pálmi Gestsson: „Það er eins og fólk sé ekki með öllum mjalla.“
Einar ljóstrar upp hvar hann hefur verið að sjá þennan málflutning: „Það segja mér menn sem hafa haft þrek til að lesa spjallrásir sósíalistaflokksins um þessi mál að það sé eins og að kasta sér í úldinn skítahaug.“
Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi kom sínu fólki til varnar:
„Þetta er annars fyndnasti þráðurinn á Facebook. Enn einu sinni grípa kratar einhverja vitleysuna á lofti til að sanna hvað sósíalistar eru hættulegir og vondir og þeir sjálfir húsvanir og penir, kannski í von um hrós frá Varðbergi og Birni Bjarna,“ segir hann. „Alls staðar um heim er fjallað um innrás Pútín í Úkraínu sem innrás kjarnorkuveldis inn í sjálfstætt ríki, fólk hefur áhyggjur af lífi og öryggi íbúanna og því að þetta stríð geti magnast upp og kallað á stigvaxandi andsvör og aðgerðir og enn meiri hörmungar, eins og er eðli stríða. Nema í litla krataheiminum á Íslandi. Þar er þessi innrás sönnun þess hvað sósíalistar eru vont fólk.“