Þeir sem létust voru ekki í bílbelti eða barnabílstól

Tvær konur á fertugsaldri og ellefu mánaða gamalt stúlku­barn létust í bílslysi við Núpsvötn í desember árið 2018. Rannsókn hefur leitt í ljós að konurnar voru ekki í bílbelti og að stúlkan hafi ekki verið í barnabílstól.

Í niður­stöðum skýrslu rann­sóknar­nefndar sam­göngu­slysa segir þá að ökumaður bílsins hafi ekið yfir hámarkshraða. Hann hafi verið á 114 km/klst en þá var hámarkshraðinn á brúnni 90 km/klst. Nú hefur hann verið lækkaður í 50 km/klst.

Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum þegar hann fór inn á einbreiða brú sem var ísilögð. Hann fór þá utan í vegriðið hægra meginn sem gaf undan.

Á­fengis- og lyfja­prófanir á öku­manni bif­reiðarinnar gáfu ekki til kynna notkun lyfja eða vímu­efna. Alls voru sjö manns í bílnum en farþegarnir voru ferðamenn af breskum uppruna.

Í skýrslunni segir þá að brúin yfir Núps­vötn standist ekki nú­verandi staðla.