Útlit er fyrir langvarandi eldgos í Geldingadal en eins og flestum er kunnugt hafa þúsundir lagt leið sína að gosstöðvunum. Allt hefur gengið vel, enn sem komið er, en á Facebook-síðu Eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands er birt mikilvæg áminning til þeirra sem hyggjast heimsækja gosstöðvarnar.
Í færslunni segir:
„Sæl öll, nú þurfum við aðeins að fara yfir hlutina. Útlit er fyrir langvarandi eldgos í Geldingadal. Sú staðreynd bíður okkur upp á það einstaka tækifæri að fara og sjá eldgos með eigin augum. EN við óskum eftir því að þið farið varlega.“
Í færslunni segir að nú sé orðið ljóst að gasútstreymi frá frá eldstöðvunum sé ekkert í líkingu við það sem áður hefur sést.
„Þar er einstaklega hættuleg og sterk blanda CO2 og CO, sem eru lífshættuleg gös. Höfum í huga að á gosstöðvum er mikið af lögreglufólki og björgunarsveitarfólki er vinnur við að tryggja okkar öryggi,“ segir í færslunni og bent á að þau séu öll með gasmæla og gasgrímur.
„Þegar gasmælarnir fara að væla er réttast að færa okkur að lágmarki 10 m ofar en þar sem þau eru. ÞAU ERU MEÐ GASGRÍMUR, við hin ekki. Með í þessum skilaboðum er tafla um gasþol og áhrif þeirra eldfjallagasa er upp streyma á eldstöðvunum,“ segir í færslunni sem endar á þessum orðum:
„GOTT ER LÍKA AÐ MUNA AÐ EF EINHVER FELLUR Í ÓMEGIN VEGNA CO2/CO EITRUNAR – GETUM VIÐ EKKERT GERT NEMA AÐ VERA MEÐ SÚREFNI MEÐ OKKUR – EF VIÐ FÖRUM TIL HJÁLPAR, ÁN SÚREFNIS, FÖRUM VIÐ SÖMU LEIÐ. Njótum náttúrunnar á hennar forsendum, en ekki okkar og höfum alltaf vindinn í BAKIÐ.“
Sæl öll, nú þurfum við aðeins að fara yfir hlutina. Útlit er fyrir langvarandi eldgos í Geldingadal. Sú staðreynd bíður...
Posted by Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands on Miðvikudagur, 24. mars 2021