Þaul­skipu­lagt inn­brot í Gnoðar­vogi: „Við vorum í á­falli í gær­kvöld og fram á nótt“

Verð­mætum sem skipta milljónum var stolið úr bíl­skúr í Reykja­vík í fyrri­nótt og segir íbúi að inn­brotið hafi verið þaul­skipu­lagt.

„Við vorum í á­falli í gær­kvöld og fram á nótt,“ segir kona í Gnoðar­vogi í Reykja­vík í sam­tali við DVeftir inn­brot í bíl­skúr hennar og eigin­manni hennar.

Í frétt DV, segir að í bíl­skúrnum voru mikil verð­mæti, meðal annars mikið magn af alls­konar há­gæða veiði­vörum í eigu eigin­manns konunnar.

Til dæmis ný rjúpna­vesti, tug­þúsundir veiði­flugna, veiði­fatnaður af dýrustu gerð, veiði­stangir, rán­dýrar veiði­töskur, veiði­hjól, auk þess sem riffil- og hagla­byssu­skot voru tekin.

„Við fengum sjokk þegar við sáum riffil­töskuna opna á gólfinu en þegar við að­gættum veiði­skápinn sáum við að þeir höfðu ekki komist inn í hann,“ segir konan en í veiði­skápnum eru rifflar og hagla­byssur.

Konan segir að inn­brotið hafi lík­lega verið framið í fyrri­nótt en hjónin komust ekki að því fyrr en í gær­kvöld en þau vinna langan vinnu­dag. Hún lýsir því í sam­tali við DV hvernig þau upp­götvuðu inn­brotið:

„Það var ekki fyrr en á ellefta tímanum í gær­kvöld. Þá kallar gömul ná­granna­kona á mig og segir að það sé búið að vera opið í allan dag og allt kveikt. Þeir hafa lík­lega farið þarna inn ein­hvern tíma í fyrri­nótt.“

Konan segir að inn­brotið virðist þaul­skipu­lagt og þjófarnir hafi haft vit­neskju um hvað væri að finna í skúrnum. Ekki dugði til að allt væri lokað og læst:

„Skúrinn var harð­læstur og fram­hliðin snýr út í götu. Út í garðinn er hurð sem var vel læst og allir gluggar voru lokaðir. Þeir brutu sér leið inn með kú­beini, brutu upp læsinguna og fóru inn.“

Lög­reglu­menn á vett­vangi tjáðu konunni að lík­lega hefði engu máli skipt hve margir lásar hefðu verið fyrir hurðinni, mennirnir hefðu á­vallt brotið sér leið inn.

Þjófarnir létu eldri og verð­minni búnað eiga sig og einnig snertu þeir ekki við dýrum mál­verkum sem eru í bíl­skúrnum. Konan segir vinnu­brögðin bera þess merki að það sem var tekið hafi annars vegar verið það verð­mætasta og hins vegar hlutir sem hægt er að koma hratt í verð.

„Þetta var ekkert venju­legt inn­brot í bíl­skúr heldur þaul­skipu­lögð að­gerð,“ segir konan sem reynir að binda vonir við að rann­sókn lög­reglu leiði til endur­heimtar þýfisins.

Tölu­vert hefur verið um inn­brot í Lang­holts­hverfi undan­farið og í­búar eru hvattir til að vera á varð­bergi.