Þau munu sjá um Ára­móta­skaupið í ár

Höfundar Ára­móta­skaupsins í ár eru þau Hug­leikur Dags­son, Lóa Hjálm­týs­dóttir, Vala Kristín Ei­ríks­dóttir, Þor­steinn Guð­munds­son, Bragi Valdimar Skúla­son og Katla Margrét Þor­geirs­dóttir. Líkt og í fyrra verður leik­stjórn í höndum Reynis Lyng­dal.

Í til­kynningu sem RÚV hefur sent frá sér segir Reynir erfið­leikar vegna kórónu­veirufar­aldursins kalli á nær­gætni en efnis­tök sem gleðja og hlýja. Hann segir að gerð Ára­móta­skaupsins sé ein skemmti­legasta vinna sem hægt er að hugsa sér.

„Að skoða og greina sam­tímann í gegnum grín og hafa tæki­færi til að vinna með fyndnasta fólki á landinu eru for­réttindi. Þegar mér bauðst að gera Skaupið í ár eftir að hafa gert, að því er mér finnst, vel heppnað skaup í fyrra þurfti ég ekki að hugsa mig lengi um. Erfið­leikar vegna kórónu­veirufar­aldursins og af­leiðinga hans á allt sam­fé­lagið kalla á nær­gætni og efnis­tök sem gleðja og hlýja. Við viljum vekja von. Þó er engin hræðsla við að gera gagn­rýnið grín þegar það á við á sama tíma og virðing fyrir fólki er í há­vegum höfð. Vonandi tekst okkur sem að þessu vinnum að gera árinu góð skil og skemmta landanum í leiðinni,” segir Reynir í til­kynningunni.

Skarp­héðinn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri RÚV, segir að síðasta Ára­móta­skaup hafi verið afar vel heppnað hjá Reyni og gagn­kvæmur á­hugi hafi verið á að endur­taka leikinn.

„Það sem stóð þar upp úr og gladdi okkur sér­stak­lega var hversu vel tókst upp við að ná þeirri næsta ó­mögu­lega breiðu skír­skotun sem Skaupið þarf að hafa og þá einkum með til­liti til vals á við­fangs­efni, hins breiða aldurs­hóps sem horfir á Skaupið og svo auð­vitað smekks á gríni,“ segir Skarp­héðinn.

Þá hafi það gert út­slagið þegar Reynir og fé­lagar hjá Repu­blik lögðu til þetta „geggjaða skrifara­t­eymi sem saman­stendur af nokkrum af okkar reyndustu grín­höfundum í bland við yngri sem eru tví­mæla­laust með þeim okkar allra efni­legustu,“ segir Skarp­héðinn og bætir við að til um­fjöllunar verður afar sér­stakt ár, hreint for­dæma­laust, og þá sé eins gott að þeir sem tækli það kunni til verka.

Tökur á Skaupinu hefjast í nóvember.