Forsvarsmenn útvarpsþáttarins Zúúber hafa tilkynnt nokkuð óvænt að þátturinn verði ekki á dagskrá framar. Mjög hörð gagnrýni kom fram á þáttinn síðastliðinn laugardag eftir að greint var frá niðrandi ummælum útvarpskonunnar Siggu Lundar í garð tónlistarmannsins Valdimars Guðmundssonar.
„Takk fyrir samfylgdina í vetur, við tókum þá ákvörðun eftir samræður okkar á milli og við fyrirtækið að láta staðar numið sem hópur núna. Sigga heldur sínu striki á Bylgjunni. Takk fyrir að hlusta. Þangað til næst, Svali, Gassi og Sigga.“
Engar frekar útskýringar fyrir þessari ákvörðun eru gefnar upp í færslunni sem birtist á Facebook nú í hádeginu. Ekki þykir þó útilokað að hún tengist atburðum síðustu daga.
Sjá einnig: Hneykslast á ummælum Siggu Lundar í garð Valdimars: „Reiðin kraumar inn í mér“
Þátturinn var á dagskrá FM957 í sex ár en hætti árið 2010. Í fyrrasumar hóf þátturinn göngu sína á ný á Bylgjunni og átti hann að vera á dagskrá út þennan vetur eftir því sem næst verður komist.
Eins og fyrr segir kom harkalega gagnrýni fram á þáttinn um helgina vegna téðra ummæla Siggu Lundar. Voru þáttastjórnendur þá að tala um holdafar og fitufordóma þegar Sigga, einhverra hluta vegna, minntist á Valdimar Guðmundsson.
„Mér finnst mjög leiðinlegt að nefna þetta en ég held að margir hafi orðið varir við sína fitufordóma, vegna þess að ég varð það, þegar við lásum greinina um daginn um ákveðinn söngvara sem á von á barni með kærustunni sinni,“ sagði Sigga og vísaði þar til Valdimars og unnustu hans, Önnu Bjarkar Sigurjónsdóttur, en þau tilkynntu fyrir skemmstu i að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman.
Systir Valdimars, Sylvía Guðmundsdóttir, var meðal þeirra sem gagnrýndi Siggu Lund hvað harðast. „Þessi kona beitti bróðir minn ofbeldi í beinni útsendingu. Vanvirðingin sem hún sýnir honum og ástkæru barnsmóður hans er þvílík,“ sagði Sylvía í færslu á Facebook.
Takk fyrir samfylgdina í vetur, við tókum þá ákvörðun eftir samræður okkar á milli og við fyrirtækið að láta staðar...
Posted by Zúúber on Þriðjudagur, 16. febrúar 2021