Þarf að greiða bætur fyrir ummæli um meðlim DaddyToo

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Önnu Þórey Arnarsdóttur, félaga í hópnum Aktivistum gegn nauðgunarmenningu, til að greiða Hugin Þór Þorsteinssyni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem hún lét falla um hann í athugasemdakerfi Stundarinnar og á Pírataspjallinu á Facebook árið 2018. Einnig er henni gert að greiða honum 800 þúsund í málskostnað. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.

Ummælin snerust um forsjárdeilu Hugins og barnsmóður hans. Tóku bæði þátt í henni, Huginn og barnsmóðirin báru á hvort annað þungar sakir.

Stormasamt samband

Barnsmóðirin lýsti sambandi þeirra sem stormasömu í viðtali við Stundina síðla árs 2017. Þar kom fram að hún hafi kært Hugin til lögreglu fyrir að brjóta á sér.

Huginn lýsti einnig samskiptaerfiðleikum þeirra opinberlega. Ásakanir hennar um ofbeldi væru uppspuni frá rótum sem sprottið hefðu af forsjárdeilu þeirra. Hann sagði barnsmóður sína hafa tálmað umgengni hans við son sinn.

Þá kemur fram í dómi Héraðsdóms að Huginn hafi stigið fram sem meðlimur í Facebookhópnum „DaddyToo“. Hann hafi lýst þeim tilgangi hópsins að berjast gegn tálmunum mæðra og jafnrétti gagnvart feðrum í forsjármálum.

Sakaður um ofbeldi

Ummælin sem umrætt dómsmál snýst um eru þrjú. Þau fyrstu voru höfð uppi í í athugasemdakerfi Stundarinnar Við fréttina ritaði Anna Þórey athugasemdina:

„Er það þannig sem þú sérð ekki að þú ert ofbeldismaður Huginn af því að þú sagðir alltaf eitthvað sætt og varst með atlot þess á milli sem þú barðir hana?“

Hin ummælin tvö birtust á Pírataspjallinu á Facebook. Umræðuefnið voru tálmanir, kynbundið ofbeldi og forsjárdeila Hugins og barnsmóður hans. Þar lagði Anna Þórey orð í belg með eftirfarandi athugasemdum:

„Hins vegar þekki ég aðeins til fyrrum eiginkonu Hugins og ég veit að hann barði hana“ og

„Ég hef talað við Maariu og ég hef talað við konu sem varð vitni að því þegar þú beittir hana ofbeldi.“

Alvarleg ummæli

Um ummælin þrjú segir í dómi héraðsdóms að þau verði ekki skilin öðru vísi en að með þeim sé Huginn sakaður um refsiverða háttsemi; ofbeldi gegn barnsmóður sinni. Þau hafi falið í sér staðhæfingar um staðreyndir sem hafi verið til þess fallnar að verða virðingu Hugins til hnekkis.

Þær hafi enda verið mjög afdráttarlausar. Þá hafi tilvísanir Önnu Þóreyjar til heimilda verið til þess fallnar að auka á alvarleika ummælanna.