Gunnar Dan Wiium, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Þvottahússins, segist svo þakklátur listamanninum sem hefur um árabil skilið neonlituð glös og bolla eftir á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar. Í færslu sem hann birti á Facebook í gær þar sem hann segir að eftir að hann flutti heim eftir langa dvöl erlendis þá hafi hann tekið eftir einu merkilegu.
„Það er einhver sem kemur fyrir bollum, glösum í skærum neon litum á hvolfi á staurenda þessa litla skiltis við gatnamótin. Það hefur eitthvað verið talað um þetta, og eflaust skrifað um þetta í blöðin en engin virðist vita hvað er í gangi,“ segir hann.
Gunnar segir að fyrst þegar hann tók eftir bollunum hafi hann verið í neyslu og túlkað skilaboðin í takt við það en að hann viti nú að það sé líklega ekki rétt túlkun. Hann hafi hugsað um að koma fyrir myndavél til að ná listamanninum á mynd en að hann vilji á sama tíma ekki skemma gjörninginn.
Gunnar segist svo þakklátur listamanninum sem minnir mann á í hversdagsleikanum að lífið er beyglað og að það sé svo margt í boði.
„Það er sköpun og góðverk í bollunum, ég vill koma til skila endalausu þakklæti til fórnfúsa, góðhjartaða listamannsins sem leggur sig svo fram við að minna okkur á að lífið er beyglað, trapísulaga og allt er í boði svo lengi sem kjósum að gefa okkur á vald þess sem svo margir líta á sem frávik,“ segir hann svo að lokum í færslunni.
Færsluna má sjá að neðan.
Fyrir áhugasama má svo hér lesa viðtal við listamanninn sjálfan sem kallar sig Léttfeti og lýsti því árið 2019 í viðtali við DV að bollarnir tengist vímuefnum ekki á neinn hátt.