Þakkar Sig­mundi Davíð fyrir að sýna enn einu sinni hversu „gagns­laus“ stjórn­mála­maður hann er

„Takk fyrir að sýna það enn einu sinni hversu gagns­laus stjórn­mála­maður þú ert Sig­mundur,“ segir Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata. Hann sendir Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokksins, kaldar kveðjur á jólunum.

Björn Leví deilir á Face­book frétt RÚV frá því í gær þar sem fjallað var um ný­birta grein Sig­mundar Davíðs í tíma­ritinu Spectator. Í grein sinni gagn­rýndi Sig­mundur nokkuð kirkjuna hér á landi, hún væri með rangar á­herslur og oft þögul í málum sem skipta miklu máli. Hún væri dæmd til að mis­takast ef hún reyndi um of að fanga tíðar­andann.

Sig­mundur tók sem dæmi aug­lýsinga­her­ferð kirkjunnar í haust þar sem Jesús var með brjóst og vara­lit. Þá hefði verið minnst oftar á Gretu Thun­berg en Jesú í síðustu ný­árs­messu.

Björn Leví gefur lítið fyrir grein Sig­mundar Davíðs og segir í kald­hæðni: „Ein­mitt, hættum með kven­presta og allt það. Það hefði aldrei átt að hætta með rann­sóknar­réttinn!. Ekkert nema mis­tök að fylgja tíðar­andanum sko.“