Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, gagnrýnir þá ákvörðun kærunefndar útlendingamála að vísa hinni bandarísku Kyönu Sue Powers úr landi.
Kyana kom fyrst til Íslands árið 2018 og varð strax ástfangin af landi og þjóð. Færslur hennar á Instagram hafa vakið mikla athygli og mætti í raun segja að hún sé það sem kalla mætti áhrifavaldur.
Greint var frá því í gær að kærunefnd útlendingamála hefði hafnað beiðni hennar um dvalarleyfi. Kyana ræddi yfirvofandi brottvísun við Fréttablaðið í aprílmánuði og þá sagði hún það mikinn missi fyrir íslenskt atvinnulíf að missa áhrifavalda sem kynna land og þjóð fyrir ferðamönnum.
Undir þetta tekur Guðmundur Andri í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Mér finnst það svo sannarlega mjög leiðinlegt að þessum mikla og ötula Íslandsvini skuli þakkað allt markaðsstarfið fyrir land og þjóð með brottvikningu eins og hún sé sakamaður. Þetta er alltaf að gerast. Það er sífellt verið að reka fólk héðan úr landi sem ekki hefur annað til saka unnið en að vilja lifa hér og starfa, byggja hér upp líf sitt,“ segir Guðmundur Andri og bætir við:
„Þröngsýn stefna stjórnvalda hér virðist knúin af einangrunarhyggju og hleypidómum. Samt vantar fólk hér – það vantar fullt af alls konar fólki til að sinna alls konar störfum, greiða skatta og bæta nýjum elementum í þjóðarsúpuna.“