Fjörugar umræður fara nú fram í hinum fjölmenna Facebook-hópi, Vegan Ísland, vegna þáttanna Kjötætur óskast! sem sýndir hafa verið á Stöð 2. Lokaþátturinn var sýndur í gærkvöldi en í þættinum er fylgst með fjórum fjölskyldum sem prófa að gerast vegan í einn mánuð.
Lóa Pind tók einnig þátt í þáttunum en eins og Hringbraut greindi frá í morgun gafst hún upp að þessum fjórum vikum liðnum. Sagðist Lóa hafa þurft að neita sér um flest það sem henni þykir best.
„Vantaði þriðju víddina. Fannst eins og vélindað væri að þorna upp. Ég hef upplifað svona vélindaþornun áður - þegar mig hefur vantað eitthvað af eftirtöldu í hina heilögu þrenningu: Nautakjöt + rauðvín + kók light,“ sagði Lóa meðal annars þegar hún gerði upp þættina á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Vala Árnadóttir, framkvæmdastýra Samtaka grænkera á Íslandi, deilir frétt Hringbrautar í grúppunni og segir:
„Öööööö veit Lóa Pind ekki að Coke Light og flest rauðvín eru vegan? Amk. Þau rauðvín sem eru góð. Voðalega er þetta þunnur þrettándi.“
Júlía Sif Liljudóttir, Veganistu-systir sem meðal annars hefur gefið út matreiðslubók fyrir grænkera, gefur þáttunum ekki háa einkunn.
„Mér fannst þetta alveg glataðir þættir. Bara verið að einblína á hvað veganismi er glataður og hvað maturinn er vondur. Fengu enga hjálp nema ehv „kokka“ heim til sín eitt kvöld sem voru ekki einu sinni allir vegan. Mér finnst líka mjög skrýtið ef að Lóa var bara að grínast alla þættina með að finnast vegan svona glatað... En allavega illa upp sett og látið líta út fyrir að vera ógeðslegur matur og erfiðast í heimi að skipta yfir í vegan.“
Fleiri athugasemdir undir færslunni eru í svipuðum dúr. „Mér finnst magnað að gera þátt um „veganisma“ en vita samt ekki hvað veganismi er. Ýtir enn frekar undir ranghugmyndir almennings um að veganismi sé mataræði,“ segir til dæmis í einni.
Þá segir í annarri athugasemd: „Þetta var bara einhver allsherjar misskilningur efnistökin í þessum þætti. Fannst bara yfirhöfuð gert lítið úr veganisma og Veganbúðin sem sponsor var ekki að fá það sem var örugglega lagt upp með. Ekkert um velferð dýra, bara dýrafret, hvað allt er mikið ógeð, erfitt og heilsuspillandi.“