Þættir Eddu Falak í dvala en á­skrif­endur rukkaðir mánaðarlega – Sjáðu fjár­hæðirnar sem Edda hefur fengið

Áskrifendur hlaðvarpsþáttanna Eigin Konur hafa ekki fengið nyjan þátt síða um miðjan desember. Þetta kemur fram í frétt DV.is.

Samkvæmt frétt DV borga tæplega 800 manns um 905 þúsund krónur á mánuði fyrir að minnsta fjóra þætti á mánuði. Edda stofnaði þættina Eigin konur með Fjólu Sigurðardóttur en síðan andaði köldu á milli þeirra meðal annars út af peningamálum. Edda hefur séð um þættina ein síðan þá.

Mánaðarleg gjöld áskrifenda á Patreon síðu þáttann er helsta tekjulind þeirra. Í um­fjöllun DV segir að þegar best var hafi á­skrif­endur þáttarins á vef Pat­reon verið rúm­lega 1700 talsins. Hægt er að borga frá 1156 krónum til 2168 króna fyrir á­skrift, eða 8 og 15 Banda­ríkja­dollara. Segir miðillinn að Edda sé nú með 783 á­skrif­endur á Pat­reon. Séu þeir allir að borga lægsta gjald, eða 1156 krónur á mánuði, sé Edda sam­tals að græða 905 þúsund krónur á mánuði fyrir þættina og hafi því greitt 1,8 milljónir síðustu tvo mánuði án þess að Edda hafi gefið út neitt nýtt efni.

DV sendi fyrirspurn á Eddu sem sagði að upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar væru væntanlegar en svaraði ekki spurningu um áskriftargjald Patreon.

„Ég þurfti að taka mér aðeins frí í janúar en er að klára að ganga frá öllu núna, það eru smá breytingar en ég mun pósta um það fyrir helgi,“ sagði Edda í samtali við DV.is