Það versta sem komið hefur fyrir veitingahúsamenninguna: „Ég einfaldlega tek ekki þátt í þessu“

„Matseðill í gegnum QR kóða og panta + greiða online er það versta sem hefur komið fyrir veitingastaðamennningu heimsins,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður á Twitter.

Sífellt fleiri veitingastaðir hafa nú tekið upp svokallað QR-kerfi þar sem matseðillinn er skannaður í gegnum QR-kóða, pöntunin lögð inn á netinu og greitt fyrir matinn í greiðslugátt.

Ekki eru allir hrifnir af þessu kerfi og hafa ýmsir látið í sér heyra. Síðast í gær velti Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, þessu fyrirkomulagi fyrir sér eins og Hringbraut fjallaði um.

Það eru fleiri en Guðmundur og Björn sem eru ekki hrifnir af þessu fyrirkomulagi eins og lesa má í athugasemdum við Twitter-færslu Guðmundar.

Útvarpsmaðurinn Tómas Steindórsson tekur til dæmis undir. „Ég einfaldlega tek ekki þátt í þessu, labba bara að afgreiðsluborðinu, sýni samsung android A12L símann minn, brosi og segi svo hvað ég ætla að fá mér.“

„Þess vegna er ég ennþá með 3110,“ segir einn og vísar í Nokia 3110-takkasímann sem var vinsæll í kringum síðustu aldamót. Annar segir: „Ég er ekki orðinn 30 ára ... En ég stóð svo lengi að reyna átta mig á þessu að það endaði með að afgreiðslu strákurinn spurði hvort ég vildi frekar panta hjá honum....“