Hjördís Guðmundsdóttir hefur tekið við sem samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Hún hefur starfað á deildinni undanfarna mánuði við upplýsingamiðlun með Jóhanni K. Jóhannssyni sem ráðinn var tímabundið en hann hverfur til fyrri starfa.
Jóhann mun snúa aftur til starfa á fréttastofu Stöðvar 2 en hann var í tímabundnu leyfi frá störfum sem átti bara að vera í sex mánuði. Þróun faraldursins leiddi hins vegar til þess að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fékk að hafa Jóhann að láni lengur en til stóð.
Í samtali við Fréttablaðiðsegir Jóhann að það verði afskaplega skrýtið að byrja vinnudaginn á því að hugsa um aðra hluti en COVID-19.
„Það verður rosalega skrýtið að vakna á morgnana og þurfa ekki að hugsa um covid. Það verður líklegast mesta breytingin,“ segir Jóhann léttur. „En eðlilega mun ég ekki fjalla um ákveðin mál,“ bætir hann við.
Í tilkynningu frá almannavarnadeild er Jóhanni þökkuð fyrir góð störf og óskað velfarnaðar á sínum vettvangi.
Hjördís Guðmundsdóttir tekur við sem samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Hún hefur starfað á...
Posted by Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra on Föstudagur, 19. febrúar 2021