„Það þarf ekki nema einn að komast inn til að byrja nýja bylgju af þessum far­aldri“

„Það sem ég ætla að gera núna er að fara með ykkur í gegnum þau gögn sem við höfum aflað á síðustu vikum og reyna að sann­færa ykkur um að það hafi ekki verið annar mögu­leiki í spilunum en sá að setja á þá reglu að allir þeir sem koma til landsins séu skimaðir, síðan settir í nokkurra daga sótt­kví og síðan skimaðir aftur.“

Þetta segir Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, í nýju mynd­bandi. Í mynd­bandinu fjallar hann um hvernig rað­greining á kóróna­veirunni hefur leitt í ljós að harðari að­gerðir á landa­mærum séu nauð­syn­legar til að varð­veita heilsu og líf fólks og verja hvers­dags­lífið í sam­fé­laginu.

Sú á­kvörðun yfir­valda, síðast­liðinn föstu­dag, að beita harðari að­gerðum á landa­mærunum hefur vakið tölu­verð við­brögð og eru ekki allir sáttir við hana. En Kári segir að engin önnur leið hafi verið fær og rekur hann á­stæður þess í mynd­bandinu hér að neðan.

„Það þarf ekki nema einn að komast inn til að byrja nýja bylgju af þessum far­aldri eins og þá sem hefur gengið yfir okkur á síðustu þremur vikum. Slík bylgja af þessum far­aldri vegur að heilsu og lífi lands­manna og setur alls­konar starf­semi í upp­nám, eins og skóla, menningar­starf og margt fleira,“ segir Kári í mynd­bandinu sem allir ættu að horfa á.

Kári Stefánsson um skimun og sóttkví from Íslensk erfðagreining deCODE on Vimeo.