Það sem vantar í kosningaloforð Sigmundar | Twitter bregst við stefnu Miðflokksins

Óhætt er að segja kosningastefna Miðflokksins sem kynnt var í gær hafi vakið mikla athygli. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, kynnti stefnuna og lofaði ýmsu ef Miðflokkurinn kæmist til valda.

Stefnan, 10 ný réttindi fyrir íslensku þjóðina, felur meðal annars í sér að allir fullorðnir íslenskir ríkisborgarar fái helming af afgangi úr ríkissjóði endurgreiddan 1. desember árið eftir. Þá fái allir fullorðnir Íslendingar greidda upphæð 1. desember ár hvert sem verður fjármögnuð með gjöldum lagða á auðlindanýtingu, svo sem veiðigjöld og sölu losunarheimilda. Fyrsta árið myndi greiðslan nema hundrað þúsund krónum. Þá er kveðið á um það í stefnunni að þriðjungi hlutafjár Íslandsbanka verði deilt jafnt á alla íslenska ríkisborgara fyrir lok árs.

Sitt sýnist hverjum um þessa stefnu Miðflokksins og eru ekki allir þeirrar skoðunar að hún sé raunhæf. Hér að neðan má sjá viðbrögð Íslendinga á Twitter við stefnu Miðflokksins.