Það munaði mjóu hjá Gauta Þey Mássyni, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Emmsjé Gauti, en hann er á leiðinni til útlanda, og var ansi nálægt því að fara án vegabréfs.
„Jæja vildi bara láta ykkur vita að ég er á leiðinni út á morgun og finn ekki vegabréfið mitt,“ skrifaði Gauti á Facebook-síðu sína í gærkvöldi, og bætti við: „Gott að læra gegnum árin og vera tímanlega í þessum málum,“
Síðan í dag uppfærði hann fólk um hvernig málið hefði farið. Hann birti mynd af sjálfum sér ásamt glænýju vegabréfi. Það virðist hafa kostað skildinginn, en við myndina skrifaði hann: „Ekki nema 26 þúsund!“
Hér fyrir neðan má sjá myndina af Gauta.