„Það lést maður í höndunum á mér fyrir viku“

„Ég lenti í þeirri lífs­reynslu að það lést maður í höndunum á mér fyrir viku. Það var eitt það erfiðasta sem ég hef lent í,“ segir hlað­varps­stjórnandinn Þórarinn Hjartar­son.

Þórarinn mætti í út­varps­þáttinn Ís­land vaknar á K100 á dögunum. Þar segist hann hafa farið að pæla í fram­lagi fólks.

„Ég fór að pæla í fram­lagi fólks. Þetta var eldri maður sem var ekki frægur fyrir neitt en hafði svo rosa­leg á­hrif á rosa­lega mikið af fólki. Ég fór að pæla í því hvað við erum að gera í sam­fé­laginu. Ég fór að pæla í fram­lagi al­mennt,“ segir Þórarinn.

„Við pælum ó­trú­lega mikið í fólki sem er frægt og að um­ræðan eigi að hring­snúast um alla sem eru frægir og eru að „gera eitt­hvað“. Eins og þú sért ekki að gera eitt­hvað þegar þú ert að mæta í vinnu að setja upp aug­lýsinga­skilti eða eitt­hvað þess háttar. En þetta fólk er mjög nauð­syn­legt,“ segir Þórarinn.

„Það var svo­lítið af­leiðingin af því að lenda í þessari lífs­reynslu. Þetta var maður sem vann á sjó í mjög langan tíma. hann vann í litlum smá­bæ. Hann hóf að brýna flak­hnífa út af því að það kunnu það allt­of fáir. Pælið í þeim af­leiðingum sem það olli í kjöl­farið. Að fólk gat haft í sig og á bara út af til­vist eins manns,“ segir Þórarinn.

„Ég held að á Ís­landi séum við í miklu nær­tækara um­hverfi gagn­vart fram­leiðslu­keðjunni. Ég held það sé miklu auð­veldara fyrir okkur að átta okkur á því hevsu mikil á­hrif við höfum á allt okkar nær­um­hverfi,“ segir hlað­varps­stjórnandinn.

„Mér finnst um­ræðan miklu meira snúast um að við séum að rífast á Twitter og að það eigi að vera það sem við eigum að spá í. Í stað þess, eins og þegar við erum á leiðinni í vinnuna, að vera hreykin af því,“ segir Þórarinn.