„Það kostar ákveðinn dugnað, þor og kjark að vera flóttamaður“

„Ef við hugsum um hvers konar fólk það er sem að kemst hingað, þá er þetta fólkið sem að flýr heimaland sitt, þarf langan veg að fara og kemst hingað. Það kostar ákveðinn dugnað, þor og kjark“, segir Magnús D. Norðdahl, lögmaður egypskrar flóttafjölskyldu, og að í flestum tilfellum hljóti þá slíkir hælisleitendur að auðga land okkar og þjóð. Magnús er lögmaður fjölskyldu frá Egyptalandi sem vísa á úr landi síðar í mánuðinum og mætir Magnús til Lindu Blöndal í þáttinn 21 á Hringbraut í kvöld, þriðjudag.

Til stendur að senda sex manna egypska fjölskyldu, Khedr fjölskylduna, úr landi þann 16.september næstkomandi en fjölskyldan hefur dvalið hér í meira en tvö ár á meðan unnið hefur verið að máli þeirra í íslensku stjórnkerfi. Börnin sem eru fædd árin 2008, 2010, 2014 og 2018 ganga í skóla hér á landi og hafa aðlagast íslensku samfélagi og tala íslensku. Móðirin er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur lýst yfir áhuga á að starfa hér sem hjúkrunarfræðingur.

Þetta er enn eitt dæmið um að rífi eigi upp með rótum fjölskyldur sem hafa aðlagast íslensku samfélagi en vegna hægagangs í meðferð mála þeirra hér á landi séu teknar ómannúðlegar ákvarðanir um brottvikningu úr landi, segir Magnús.

Kehdr fjölskyldan

Um er að ræða hjónin Dooa Mahamed Mohamed Eldeib og Ibrahim Mahrous Ibrahim Khedr sem komu hingað til lands og sóttu um alþjóðlega vernd hér sumarið 2018 fyrir sig og börn sín fjögur. Magnús segir að málið geti fengið jákvæðan endi fyrir fjölskylduna en líka að ferlið haldi áfram í ár eða svo til viðbótar með óvissri niðurstöðu. Mál fjölskyldunnar fékk efnislega meðferð og ekki var dregin í efa frásögn Ibrahim af því að verandi í Bræðralag múslima, gegn egypskum stjórnvöldum, að þá hafi hann verið stunginn og tilraun gerð til að ræna einu barni þeirra hjóna. Hins vegar sé talið af Útlendingastofnun að fjölskyldan sé óhult í landi sínu og Bræðralagið sé það stórt að það veiti honum vernd. Það segir Magnús alrangt, stjórnvöld það í landi hafi bolmagn til að ógna lífi og limum fjölskyldna eins og Ibrahims.

Gríðarleg streita og veikindi

Heilsufarslega séu hjónin ekki vel á sig komin í dag. Dooa þjáist af miklum kvíða og þunglyndi sem hefur komið til vegna stöðunnar sem fjölskyldan sé í og Ibrahim sé með háþrýsting sem gerir hann illa staddann fái hann Covid smit. Bæði séu þjökuð af streitu og kvíða og þunglyndi og það sé staðfest í sálfræðilegum gögnum.

„Og það er sama og í öðrum málum, það er gríðarleg streita að bíða eftir niðurstöðu og þetta lengi og að vera tilkynnt um brottvísun sem svo varð ekki og svo núna aftur“.

Magnús hefur tekið að sér mörg tilvik sem þessi og segir þetta um þegar hann hóf störf fyrir hælisleitendur: „Í fyrstu stóð maður í þeirri trú að þetta hlyti að vera undantekning eða tilviljun, það væri ekki vilji stjórnvalda að leyfa þessum aðstæðum að koma upp en síðan þegar að þetta gerist trekk í trekk að barnafjölskyldur, þegar börn eru sett í þessa stöðu að þá er voðalega erfitt að hugsa með þeim hætti að þetta sé tilviljun eða undantekning, Þá er þetta kerfisbundið og sú þjáning sem verður er auðvitað hræðileg“.

„Þess vegna hef ég kosið að tala um kerfisbundið ofbeldi í þessu samhengi“, segir Magnús.

Kehdr-fjölskyldan - Mynd/Sema Erla Serdar