Alma Ýr Ingólfsdóttir hefur tekist á við stærri áföll og áskoranir en margur og ræðir hún í Helgarviðtalinu á sunnudagskvöldið á Hringbraut við Björk Eiðsdóttur um reynslu sem hæglega hefði getað bugað hana, bæði á unglinsárunum og þegar hún missir dóttur sína aðeins sex vikna. Þrautsseigja Ölmu verður þó til þess að hún eignast síðar son þegar hún ákveður að láta reyna á hamingjuna.
Um það leyti sem unglingsárin skella á fær Alma Ýr heilahimnubólgu sem veldur drepi í útlimum og var tekið neðan af báðum fótum neðan hnés og framan af níu fingrum hennar. Alma Ýr segir að fötlunin hafi aldrei henni hindrun en hún er menntaður lögfræðingur og fór í framhaldsnám í háskóla á Írlandi í þeim fræðum.
Alma segir frá missi dótturinnar Ásthildar sumarið 2017 en hún eignaðist síðar soninn Bjarkar Sigur, nú tæplega eins árs, eftir að hafa verið úrskurðuð nærri alfarið ófrjó. En um missi dótturunnar sem tekin var með bráðakeisara þá leit allt út fyrir að sú litla myndi hafa það af, grét hraustlega þó aðeins 812 grömm eftir 28 vikna meðgöngu. Gæfan varð Ölmu og barnsföður hennar þó ekki lengi hliðholl.
Helgarviðtalið er á dagskrá á sunnudagskvöldum frá Kl. 21 – 21.30 og einnig má nota tímaflakk.