Það er sársauki í gríninu

Mun íslenskt samfélag breytast til frambúðar vegna þessa ástands sem við lifum við núna og að við erum að tileinka okkur t.d. meira tæknina, tölvutæknina? Og má gera grín að faraldrinum?

„Við höfum alltaf verið meira og meira háð tækni og tilbeðið tækni; upplýsingatækni og fjarskiptatækni og nú er svolítið verið að reyna á hana þegar þessi líkamlega nánd hefur minnkað og tæknin virðist vera að standa sig að miklu leyti en ég held að stór hluti af þessu muni ganga til baka og ég held að við getum ekki beðið eftir því að halda aftur eðlilegar samkomur og hittast á fundum, ég held að þetta verði svo alveg eðlilegt að því leytinu aftur“, segir Bergur Ebbi rithöfundur og uppistandari í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld.

En um tæknina: „Svo virðist fólk líka alveg að ráða við þetta fólk í öllum störfum“.

Grín um faraldurinn

Aðspurður hvernig hægt sé að gera grín að þessum faraldri þegar fólk lætur lífið og hér heima líka.

„Ég held að það þurfi að bíða aðeins þar til maður getur séð þetta í baksýnisspegli“, segir Bergur Ebbi og að það þurfi að sýna þessum erfiðu atburðum mikla virðingu.

„Ég svona alveg frá byrjun þá sér maður að þeir sem hafa atvinnu að gríni þá sér maður eins og spjallþáttastjórnendur í Ameríku gera, það er fundin alltaf einhver leið útaf því, ef við erum ekki jafn óðum að spegla þetta og gera svoldið grín að þessu og horfa á breytingarnar þá erum við heldur ekki að greina þær og taka þær inn, þannig að ég held þetta sé ekkert spurning um hvernig það er hægt þþa er það bara lífsnauðsynlegt“

„Það er það sem er áskorun grínista alltaf, hlutirnir eru ekkert fyndnir nema það sé einhver sársauki nálægur og grínið er gott ef að grínið veitir einhverja líkn. Og það krefst stundum einhvers aga að reyna að aðskilja sársaukann frá“, útskýrir Bergur Ebbi. „í þessum fræðum er sagt að grínið sé sársauki plús tími og það er auðvitað lykilatriði hérna, ég veit ekkert hvernig þetta verður fyrir lok árs“.

„Ég held að það sé búið að leggja línur útum allan heim, það eru ákveðnir hlutir varðandi sóttkvína og þessar breytingar á samfélaginu sem hægt er að gera grín að“, bætir Bergur Ebbi við.